<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:00:59" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:01:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:00:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Já, ég tel svo vera. Ég er sammála því að það þurfi
    að skoða þetta betur. Arion banki, eins og kom fram á fundi í morgun,
    lækkaði til að mynda strax vexti þegar bankaskatturinn var lækkaður
    síðast, þannig að það eru margar breytur sem koma þarna inn í.
    Fjármálaráðuneytið sjálft bendir á annmarka við að hækka bankaskatt og það
    sem er eiginlega mjög slæmt er að nú er búið að gera ráð fyrir að þessi
    hækkun á bankaskatti muni draga úr getu bankanna til að lána um 50
    milljarða. Verðmætasköpunin minnkar eitthvað við það. Það er ekki eitt,
    það er eiginlega allt sem við þurfum að fara að eiga við í næstu viku hér
    í þinginu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>