<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:02:05" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:03:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:02:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir virkilega góða ræðu. Þingmanninum er einkar lagið að koma sínu máli
    þannig fyrir að ég held að margir skilji. Hún virðist vera í tengslum við
    málefnið þannig að hún nær að útskýra það vel. Tíminn líður svo hratt, en
    það sem mig langar að benda á og spyrja hv. þingmann um er þetta
    svokallaða framleiðniviðmið sem er tekið úr sambandi varðandi
    persónuafsláttinn og leggst á alla launþega. Þetta eru 3,1 milljarður sem
    ríkið ætlar að taka þarna inn, leggst á alla allar tekjutíundir. Hvað
    finnst þingmanninum um þetta? Telur hann þetta vera einhvern dulbúning,
    því að þetta fer ekki hátt í umræðunni, hvernig þetta smyrst jafnt og þétt
    yfir alla, <ns:bjalla/> þetta 1% sem er tekið af eða hækkar ekki eins og
    ætti að gera?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>