<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:03:34" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:04:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:03:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir
    að spyrja út í þetta því að ég náði ekki að koma inn á það í ræðu minni.
    En þetta er nú sennilega eitt af því versta því að þetta er skýrt dæmi um
    hvað er sagt og hvað er satt. Því er alltaf haldið fram að það sé verið að
    vernda þá sem minnst hafa. Það er klárlega ekki svo. Þarna er verið að
    draga í raun og veru úr persónuafslætti sem allir hafa jafnan, þannig að
    þetta kemur hlutfallslega verst niður á þeim sem minnst hafa milli
    handanna. Bara eins og með aðrar skattahækkanir, segi ég, hefði frekar átt
    að taka til í ríkisútgjöldunum en að fara af stað með allar þessar
    skattahækkanir. Í þessu samhengi var hæstv. fjármálaráðherra hér áðan að
    brigsla mér um að vera að halda því fram að ég fengi ekki gögn sem ég gæti
    alveg fengið. Það er bara ekki rétt. Ég fæ t.d. engin gögn um það hvernig
    tekjur eru að skila sér, og í því <ns:bjalla/> sambandi hugsa ég nefnilega
    um vörugjöldin. Ég vil fá að vita hvernig þau eru að skila sér. Þau eru
    líka að bitna á öllum. Áður en við förum að ákveða áframhaldandi gjöld
    <ns:bjalla/> þá væri gott að vita hvernig gjöldin sem við settum á í fyrra
    eru að skila sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími
    er ein mínúta.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>