<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:05:05" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:06:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:05:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir gott svar við andsvari mínu og langar, svona fyrir þá sem eru að
    fylgjast með, að útskýra aðeins þetta framleiðniviðmið. Þannig er að
    persónuafsláttur hækkar eins og verðlagsþróun er og hefur verið eitt
    aukaprósent sem almenningur hefur fengið í afslátt. Það er kallað
    framleiðniviðmið. En nú á að taka þetta prósent af sem þýðir að allir
    landsmenn verða fyrir tekjuskerðingu, hver einn og einasti. Ég heyri
    ríkisstjórnina ekki tala um þetta. Þetta skiptir máli, að menn séu
    meðvitaðir um að allir landsmenn verða fyrir tekjuskerðingu af þessu.
    Margt smátt gerir eitt stórt. En mig langar að spyrja hv. þingmann hérna í
    lokin hvort hv. þingmaður geti hjálpað mér með að skilgreina venjulegt
    fólk og vinnandi fólk, því að það átti ekki að hækka skatta á þetta fólk
    og hæstv. forsætisráðherra talaði um <ns:bjalla/> að það mætti ekki plata
    og sagði það ítrekað. Er forsætisráðherra plata <ns:bjalla/> þegar þessir
    skattar eru hækkaðir, að mínu mati á venjulegt og vinnandi fólk?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>