<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:06:33" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:07:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:06:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég held að ríkisstjórnin sé löngu búin að gefast upp
    á því, sé margoft búin að gefast upp á því að standa við kosningaloforðin.
    Plata, uppgjöf — ég veit ekki í hvaða flokk við eigum að setja það. Hæstv.
    fjármálaráðherra sagði áðan að hann hefði nú bara ekki — hvað ætti að
    gera, staðan væri svo slæm. Já, það var vitað þegar þau gáfu loforðin. Það
    er ekkert mál, eins og ég fór yfir áðan, að draga úr útgjöldum um 1% og
    ekki hækka skatta. Þannig að þetta er bara val ríkisstjórnarinnar, eða
    getuleysi, að senda heimilum landsins þennan reikning. Og ofan á
    reikninginn bætist svo hækkandi verðbólga af því að þau taka ekki á
    ríkisútgjöldunum. En varðandi alla landsmenn þá vil ég líka benda á þátt
    eins og losunargjöld, t.d. ETS-gjöldin eiga að hækka um 9%. Hvernig haldið
    þið að það sé fyrir alla flutninga og hvernig það bitni á öllum
    landsmönnum? Ég þarf að fara yfir það betur í seinni ræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>