<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:07:43" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:09:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:07:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég hef áhuga
    á að eiga við hana orðastað varðandi einmitt þessar krónutöluhækkanir. Nú
    var það þannig að 10. ágúst síðastliðinn birti forystufólk
    verkalýðshreyfinganna pistil undir heitinu „Sumar án aðgerða“ þar sem það
    var rakið að félög þeirra höfðu mánuðum saman kallað eftir aðgerðum og
    viðbrögðum frá bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum án árangurs. Núna örfáum
    dögum eftir að fjármálaráðherra hefur mælt fyrir fjárlagafrumvarpi sínu er
    í það minnsta hæstv. forsætisráðherra farinn að draga úr þessum áformum og
    tala á þann veg að það komi vel til greina að draga úr þessum
    hækkunum.</ns:mgr>

    <!--https://www.visir.is/g/20262919059d/sumar-an-ad-gerda-->

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þetta, hvernig þetta
    birtist hv. þingmanni, þ.e. fjárlagafrumvarpið. Forsendur þess hafa verið
    til meðferðar hjá ráðuneytinu í marga mánuði. <ns:bjalla/> Ekki er rætt
    við verkalýðsfélögin um nokkurn skapaðan hlut, svo er þetta kynnt og núna
    hyggst ríkisstjórnin einhvern veginn breyta þessum áformum, ef ég skil
    hæstv. forsætisráðherra rétt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>