<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:09:08" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:10:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:09:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir
    spurninguna. Þetta er sennilega ein erfiðasta spurningin því að ég skil
    ekki alveg þessa vegferð ríkisstjórnarinnar. Þetta er einhvern veginn — að
    setja þetta út þannig að það er strax farið að hafa neikvæð áhrif, þetta
    hefur áhrif á verðbólguvæntingarnar. Ég veit ekki hvort þetta var leikrit
    frá upphafi eða hvort þetta voru svona eftiráskýringar en svona er þetta
    alltaf. Það er eitt sagt en annað gert. Ríkisstjórnin segist vera í góðu
    samtali við verkalýðshreyfinguna en verkalýðshreyfingin kannast ekki við
    það. Ég óttast að þó að þau geri eitthvað í þessu — hvað þá? Þau munu ekki
    fara í aðhald til að vega upp á móti krónutöluhækkununum. Ætlum við að
    hækka skattana frekar? Þannig að ég veit ekki alveg hver hugsunin
    er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>