<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:10:18" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:11:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:10:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get tekið
    þar undir. Á endanum held ég að þetta snúist að verulegu leyti um traust á
    aðgerðum stjórnvalda. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns eru
    verðbólguvæntingar mjög háar og hafa farið hækkandi í tíð þessarar
    ríkisstjórnar. Ástæðan er einfaldlega sú að markaðurinn treystir ekki
    ríkisstjórninni til að skila þeim árangri sem hún var kosin til að ná í
    krafti mjög digurbarkalegrar yfirlýsingar í aðdraganda síðustu kosninga.
    Mér finnst þessi aðferð — að eiga ekki í opnu samráði við
    verkalýðshreyfinguna yfir allt sumarið, einbeita sér að þessari
    Evrópusambandsvegferð allri sem sogaði súrefnið frá ríkisstjórninni, mæta
    svo hingað, mæla fyrir þessum hugmyndum og falla frá þeim eða í það
    minnsta gefa í skyn að þarna sé hægt að veita eitthvert svigrúm. Af hverju
    í ósköpunum var þetta ekki rætt <ns:bjalla/> við verkalýðshreyfinguna í
    vor og lagðar fram betur ígrundaðar tillögur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>