<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:11:40" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:12:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:11:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég held að staðan sé bara sú að ríkisstjórnin sagðist
    geta gert tvennt í einu, verið í þessari Evrópuvegferð og sinnt öðrum
    málum. Það hefur komið í ljós að hún gat það ekki. Það fór allt púður í
    Evrópusambandsvegferðina og miðað við þingmálaskrána er ekki mikil
    bjartsýni um hvernig t.d. verðbólguvæntingar ættu að verða betri. Ég vona
    svo innilega að þetta samtal leiði til einhvers góðs. En ég óttast að ef
    vegferðin verður að minnka krónutölugjöldin þá muni það bitna á okkur
    annars staðar í staðinn fyrir að ríkisstjórnin taki til í
    ríkisfjármálunum. Og já, kannski hef ég ekkert betra svar en
    þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>