<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:12:51" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:27:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:12:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir
    sína framsögu hér fyrr í dag þar sem mælt var fyrir þessu máli um breyting
    á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027. Í umræðum hér í þingsal
    hefur frumvarpinu verið lýst sem skattahækkunarpakka ríkisstjórnarinnar og
    ég hygg að það sé nú réttnefni. Þetta frumvarp hangir auðvitað saman við
    fjárlögin sjálf. Það er óumflýjanlegt að fjalla ekki um fjárlögin samhliða
    umfjöllun um það efni sem hér er til skoðunar. Ég átti orðaskipti við
    hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrr í dag og vitnaði þá til orða
    hæstv. forsætisráðherra, sem hún fór með hér þegar hún var í
    stjórnarandstöðu. Þau orð voru eitthvað á þessa leið: Sýndu mér fjárlögin
    þín og ég skal segja þér fyrir hvað þú stendur. Þetta eru orð að sönnu,
    upphaflega höfð eftir Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að ég
    held. Það er einfaldlega ekki nóg að vera með innihaldslausar
    yfirlýsingar, digurbarkalegar á köflum, heldur eru það í raun og veru
    verkin sem tala og hér liggja þau fyrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég man eftir umræðum hér í fyrra, á síðasta þingi, um fjárlögin
    þar sem hæstv. fjármálaráðherra lýsti frumvarpinu sínu sjálfur sem svona
    litlausu plaggi. Þetta frumvarp er engu skárra, það er metnaðarlaust að
    öllu leyti. Leitast er við að ná hallalausum fjárlögum á grundvelli
    forsendna sem eru kannski býsna bjartsýnar. Ég mun víkja aðeins betur að
    því á eftir. En aðallega er markmiðinu náð með gríðarlegum skattahækkunum,
    hækkunum gjalda upp á 34,1 milljarð kr. Halli fjárlaganna, í það minnsta
    eins og þau voru samþykkt hér árið 2026, var 8,1 milljarður kr. í mínus en
    fjárlagafrumvarpið sjálft sýnir tæplega 5 milljarða kr. afgang. Batinn
    þarna á milli er algerlega brúaður með skattahækkunum, eingöngu með
    skattahækkunum. Afgangurinn er ekki afrakstur ráðdeildar eða hagræðingar í
    rekstri. Þvert á móti er verið að draga úr fjárfestingum og hækka skatta.
    Það er nú allur metnaðurinn sem er lagður á borð fyrir íslensku
    þjóðina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tel rétt að fjalla fyrst um forsendur fjárlaganna og þeirrar
    vinnu sem hér er undir. Það er auðvitað þannig að óveðursskýin hafa
    hrannast upp yfir í innlendu efnahagslífi á undanförnum mánuðum og árum.
    Þannig hafa hagvaxtarhorfur, samkvæmt þjóðhagsspá Seðlabankans, lækkað.
    Áfram er búist við hækkandi verðbólgu og verulega auknu atvinnuleysi þegar
    líður á árið. Samandregið eru hér verri hagvaxtarhorfur, minni vöxtur
    einkaneyslu, hærri verðbólga og vextir og verulega aukið atvinnuleysi.
    Þetta eru þær aðstæður sem við erum að glíma við og eru undirliggjandi
    forsendum fjárlaganna sem við erum að skoða hér. Minnkandi umsvif í
    efnahagslífinu þýða bara að veltuskattarnir, eins og t.d. þeir sem við
    erum hér að líta til, munu skila minna í kassann en vonast var
    til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er alveg rétt að benda á að þessar forsendur fjárlaganna eru
    kannski þegar orðnar svolítið hæpnar. Hér er mikið lagt upp úr því að
    skila hallalausum fjárlögum, skila þessum afgangi, en aðilar á markaðnum
    trúa því ekki að ríkisstjórninni takist það. Í því sambandi vísa ég m.a.
    til greiningar Acro-verðbréfa, sem fjallað var um í Innherja á vísi.is,
    þar sem farið er yfir allar þessar aðstæður. Það er þessi mikli vilji til
    útgjaldaaukningar sem birtist til að mynda í tengingu bóta við
    launavísitölu. Það eru þessar skattahækkanir og sparnaðaraðgerðunum hefur
    ekki verið fylgt eftir í framkvæmd. Í því sambandi vil ég líka nefna það
    að eftirfylgni við framkvæmd fjárlaga er ekki nægjanleg. Það þarf ekki að
    hafa orð mín fyrir því heldur nægir þar að nefna minnisblað fjárlaga- og
    greiningardeildar fjármálaráðuneytisins þar sem farið var yfir það að
    samkvæmt lögum um opinber fjármál bæri forstöðumönnum að upplýsa ráðherra
    án tafar um frávik frá rekstraráætlun og hvernig fyrirhugað væri að
    bregðast við þeim. Lögin um opinber fjármál gera einfaldlega ráð fyrir
    þessu. En að mati greiningardeildarinnar eru vísbendingar um að þessum
    ákvæðum laganna sé ekki fylgt eftir og þau reynast óvirk með öllu í sumum
    tilfellum. Ég nefni þetta af ástæðu vegna þess að hér í umræðunni fyrr í
    dag kölluðu þingmenn stjórnarandstöðunnar einmitt eftir því að auknum
    upplýsingum um hvernig gjöldin væru að skila sér í ríkiskassann, til að
    mynda þessi umtalsverða hækkun vörugjalda sem var samþykkt í lok síðasta
    árs; hvort tekjurnar sem þessar gjaldahækkanir áttu að skila séu í raun og
    veru að koma inn í ríkissjóð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað nokkuð mikilvægt því að í fjárlagafrumvarpinu
    eru dregnar upp margs konar sviðsmyndir, bjartsýnar og svartsýnar. En
    aðilar á markaði hafa farið yfir þetta allt saman og talið að meiri líkur
    séu á því að hin endanlega niðurstaða þessa fjárlagafrumvarps, og þá líka
    bandormsins sem við ræðum hér, verði ekki afgangur upp á 4,7 milljarða kr.
    heldur einmitt tap upp á 43 milljarða. Allt kemur þetta til vegna minni
    einkaneyslu, aukins atvinnuleysis, minni hagvaxtar o.s.frv. Og mér finnst
    það í raun og veru svolítið einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn og
    fjármálastjórnina í landinu að á endanum, þegar öllu er á botninn hvolft,
    eru þetta einna helst einhvers konar excel-æfingar sem skila sér ekki í
    raun. Það var augljóst af umræðum hér fyrr í vor er varðaði fjármálaáætlun
    ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára þar sem þráast var við að uppfæra
    horfurnar í samræmi við nýjustu spár. Ekki mátti anda á excel-skjalið, það
    þurfti að sýna tölur sem ríkisstjórninni líkaði við. Það er heldur betur
    raunin í öllum þessum málum sem við erum að fjalla um.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að fara stuttlega yfir nokkur atriði, ég hef svo sem ekki
    langan tíma, og þessa helstu þætti sem hér eru til skoðunar. Þar er af
    mörgu að taka. Í fyrsta lagi hefur bankaskattur verið nokkuð til
    umfjöllunar. Ég fylgdist með áhugaverðu málþingi Samtaka fyrirtækja í
    fjármálaþjónustu hér fyrr í morgun er fjallaði um efnið. Ég geri ráð fyrir
    því að það verði tekið til betri skoðunar hér á næstunni en hlutfallið
    hækkar um 0,1%. Mér þótti athyglisvert að heyra að þarna er hugmyndin sú
    að bankaskatturinn muni skila 6 milljörðum kr. í ríkissjóð en hagfræðingar
    hafa til að mynda metið áhrif skattahækkunarinnar á útlánagetu
    fjármálafyrirtækjanna og talið að það gæti numið 50 milljörðum, ef ég man
    rétt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað sem ég vil fjalla um sérstaklega er framleiðniviðmiðið sem
    skal lækka úr 1% í 0%. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór mjög vel yfir
    þetta atriði í andsvörum sínum við hæstv. fjármálaráðherra hér fyrr í dag
    og ég hvet alla áhugasama til að hlýða á það. Þetta er skattahækkun sem
    hver einasti einstaklingur á landinu með tekjur þarf að greiða, allar
    tekjutíundirnar. Það er þá í boði ríkisstjórnar sem sagði í aðdraganda
    síðustu kosninga að hún ætlaði ekki að hækka skatta á venjulegt vinnandi
    fólk eða hvernig svo sem það var nú orðað. En þetta er engu að síður
    niðurstaðan og áhrif þessa eru þau að allir einstaklingar sem eru með
    launatekjur þurfa að borga hærri skatta en ella. Þetta á að skila 3,1
    milljarði kr. Það er því rétt, eins og kom fram í máli hv. þm. Hildar
    Sverrisdóttur, að ríkisstjórnin hefði einfaldlega getað sleppt þessu án
    þess þó að fjárlagafrumvarpið sjálft hætti að skila einhverjum afgangi,
    þ.e. það myndi enn þá skila afgangi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef líka velt þessum krónutöluhækkunum fyrir mér og hef átt í
    orðaskiptum um það. Það má reyndar skilja það sem svo, eftir gagnrýni
    undanfarinna daga á þessi áform ríkisstjórnarinnar, að nýtt hljóð sé komið
    í kútinn. Ríkisstjórnin, forsætisráðherra, virðist hafa opnað á einhvers
    konar tilslakanir, minni hækkanir krónutölugjalda en lagt var upp með í
    þeim frumvörpum sem hér eru til umfjöllunar. Sjálfum finnst mér það sæta
    nokkurri furðu, sérstaklega þegar það er einhvern veginn sett í samhengi
    við það að þríhliða viðræður við verkalýðsfélög og sveitarfélögin, eða
    aðila vinnumarkaðarins, skili árangri; að þá sé hæstv. forsætisráðherra
    opin fyrir því að minnka þetta eitthvað. Eðlilega hefði þetta samtal átt
    að eiga sér stað í vor eða sumar en það má svo sem geta sér þess til að þá
    hafi ríkisstjórnin verið upptekin í öðru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sé að tími minn er að klárast en að endingu get ég ekki annað
    en fjallað um áform um að færa baðlón og gufuböð úr neðra þrepi í almennt
    virðisaukaskattsþrep. Þessi breyting á að skila 4 milljörðum, samkvæmt
    útreikningum ráðuneytisins. Það er æði sérstakt þegar litið er til þess að
    forystumenn ríkisstjórnarinnar, til að mynda hæstv. utanríkisráðherra,
    lýstu því yfir þegar þessi ríkisstjórn var mynduð, ef ég man rétt, á
    blaðamannafundinum þar sem þær tilkynntu um niðurstöður sínar að loknum
    samningaviðræðum, að þær ætluðu nákvæmlega alls ekki að gera akkúrat
    þetta, að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. En það varð einhvern
    veginn ofan á og það sem truflar mig kannski mest við þetta allt saman er
    það sama og birtist stundum í umræðum og skilaboðum frá þessari
    ríkisstjórn, þ.e. að hér sé um einhvers konar lúxus að ræða og þess vegna
    sé einhvern veginn minna mál að skattleggja þetta. En baðlónin eru eins og
    hver annar angi ferðaþjónustunnar og henni er ætlað að skila tekjum í
    þjóðarbúið og störfum. Þarna hafa aðilar ráðist í umfangsmiklar
    fjárfestingar. Þetta hefur verið þvílíkur vaxtarsproti fyrir
    ferðaþjónustuna víðs vegar um landið, bara um landið allt. En vegna þess
    að þessi baðlón hafa verið að skila afkomu þá kemur ríkiskrumlan og ætlar
    að sækja það. Það er mjög einkennilegt að horfa á þessar gjaldahækkanir
    sem nema tæpum helmingi af afkomu allrar greinarinnar. Afkoma allrar
    greinarinnar hefur verið 20 milljarðar kr. og hér er ríkiskrumlan að fara
    að taka 9 milljarða af því, ef ég man rétt, saman tekið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég sé að tími minn er búinn þannig að ég læt staðar
    numið í bili.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>