<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:28:09" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:30:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:28:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir
    prýðisræðu. Mig langar til að spyrja hann út í það sem ég kalla
    metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar. Nú er hann búinn að fara ágætlega yfir
    marga ókosti við frumvarpið. Ef ríkisstjórnin hefði ákveðið að standa sig
    aðeins betur og draga úr ríkisútgjöldum um rúmt prósent hefði ekki þurft
    að hækka neina skatta á fólk og fyrirtæki og þar með hefði hún staðið við
    eigin loforð, fyrir utan alla þá kosti sem það hefði í för með
    sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrsta spurningin er hvort hv. þingmaður geti tekið undir það með
    mér að það sé ákveðið metnaðarleysi að draga ekki meira úr ríkisútgjöldum
    þegar ekki þarf meira en þetta til að standa við kosningaloforðin. Hvenær
    er þá hægt að gera ráð fyrir að þessir flokkar standi við kosningaloforðin
    ef þeir gera það ekki með því að draga úr allt of stóru bákni um 1%? Það
    er fyrsta spurningin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Seinni spurningin kemur aftur að því hvernig þessi ríkisstjórn
    hefði frekar, að mínu mati, átt að draga úr útgjöldum. Þau ætla að draga
    úr starfsmannafjölda — þó jafnvel minna en það sem telst eðlileg
    endurnýjun miðað við hve margir hætta, þannig að þar er líka ákveðið
    metnaðarleysi. Frá árinu 2016 hefur fjölgun opinberra starfsmanna verið
    28% á meðan aukning mannfjölda hefur verið 19%. Víða í einkafyrirtækjum
    hefur starfsmönnum fækkað frá því sem var 2016 vegna hagræðingar og
    tækniframfara. Er þessi punktur ekki eitthvað sem við þurfum að skoða
    sérstaklega í vinnu nefndarinnar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>