<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:30:23" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:32:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:30:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt andsvar eða
    fyrirspurn. Ég tek undir það með hv. þingmanni að fjárlagafrumvarpið,
    uppleggið allt, lýsir metnaðarleysi. Ég deili líka áhyggjum með hv.
    þingmanni af þeirri vegferð sem við erum á og höfum verið kannski í of
    langan tíma. Það má til að mynda sjá í fjárlagafrumvarpinu, þ.e. að
    heildartekjur eru áætlaðar 1.708 milljarðar kr. sem eru 30,6% af vergri
    landsframleiðslu, að ríkið sé einfaldlega orðið of fyrirferðarmikið í
    íslensku samfélagi. Það kom ágætlega fram í prýðilegum orðaskiptum hv. þm.
    Sigríðar Á. Andersen hér fyrr í dag en hún hafði orð á því að tekjuskattur
    einstaklinga, tekjur ríkisins, sé einfaldlega orðinn lægri en
    tilfærslukerfið er að greiða út. Bæturnar eru orðnar hærri en tekjuskattur
    einstaklinga. Á endanum er ég þeirrar skoðunar að best sé að búa í frjálsu
    og opnu samfélagi þar sem reglur eru virtar og þær eru fyrirsjáanlegar.
    Það er kannski það sem maður óttast í þessari atrennu ríkisstjórnarinnar
    að einstaka atvinnugreinum, þ.e. þessi skortur á fyrirsjáanleika. Það er
    frekar dottið í þá freistni að sækja sér peninga alls staðar þar sem
    gengur vel, reyna að kremja það niður. Það er kannski það sem ég óttast
    einna helst.</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>