<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:32:38" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:34:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:32:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég get tekið undir að þetta eru eiginlega sláandi
    tölur sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen fór yfir hér fyrr í dag. Í því
    sambandi langar mig aðeins að spyrja út í bótakerfið í tengslum við það
    hvort ríkisstjórnin telji sig búna að gera allt sem hún getur til að
    spara, vera með aðhald og útrýma sóun. Hún ætti að gera það áður en hún
    fer að skattleggja fólk og fyrirtæki. Ég er mikil áhugamanneskja um að
    velferðarkerfið okkar virki vel. Það hefur verið samstaða meðal
    þjóðarinnar í áratugi um að við viljum reka hér gott velferðarkerfi en við
    gerum það ekki nema við höfum kannski ákveðið eftirlit með því. Í því
    sambandi vil ég benda á að árið 2013, í bótaflokki örorkulífeyrisþega,
    opnaði Tryggingastofnun 626 eftirlitsmál. Síðan þá hafa útgjöld til
    málaflokksins meira en tvöfaldast og orðið mörg þúsund manna aukning
    þeirra sem þiggja bætur. Engu að síður hefur meðaltalið síðustu þrjú ár
    verið í kringum 70 mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Erum við kannski að gleyma að rýna kerfin, hvar við megum gera
    betur, draga úr óráðsíu og sóun, af því að það er orðið of auðvelt
    einhvern veginn að hækka skatta og réttlæta það með því að það sé til að
    bæta þjónustuna? Er ekki hv. þingmaður sammála því að þetta sýni ekkert
    endilega að þjónustan sé betri?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>