<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:34:50" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:37:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:34:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að
    við hljótum öll að vera sammála um að koma í veg fyrir bótasvik, grípa til
    aðgerða þar sem þau sannast og eðlilega þarf að hafa virkt og gott
    eftirlit með slíku. Þarna erum við kannski komin nokkuð út fyrir efni
    sjálfs bandormsins en auðvitað skiptir þetta máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það eru ákveðnir útgjaldaliðir sem hafa farið vaxandi á
    undanförnum árum, annars vegar velferðarkerfið og hins vegar
    heilbrigðiskerfið, og það er auðvitað svo auðvelt að fara þá leið sem
    þessi ríkisstjórn fer, þ.e. að vera með einhvers konar málamyndaaðhald sem
    er sáralítið, að lækka fjárfestingarframlögin. Það er í raun og veru bara
    frestun á útgjöldum, engin raunveruleg forgangsröðun, bara verið að fresta
    skuldadögum og hækka svo skatta á fólk og fyrirtæki í landinu og þá finnst
    mér einmitt athyglisverðast hver fórnarlömb ríkisstjórnarinnar eru. Það er
    einhvern veginn eins og atvinnustarfsemi sé dregin í dilka út frá einhvers
    konar ætluðum lúxus, þ.e. að það sé einhvern veginn eðlilegt, vegna þess
    að aðgangseyririnn að baðlónum er kannski býsna hár, að skattleggja þau
    umfram það sem önnur ferðaþjónusta þarf að greiða. Allt kemur þetta
    auðvitað til af ástæðu og ég hygg að þessi <ns:bjalla/> — ég sé að tíminn
    minn er búinn. En allt kemur þetta til af ástæðu og það er sem sagt verið
    að höggva nærri atvinnuvegunum í landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>