<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:37:14" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:52:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:37:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég verð eiginlega að byrja á að nefna það, frú
    forseti, að ég vék talsvert að þeim málum sem mest hafa verið til umræðu
    hér í dag í umræðum um fjárlagafrumvarpið í síðustu viku og undir þeim
    formerkjum hvort verið væri að fara í þá átt sem landsmenn máttu vænta af
    þessari ríkisstjórn. Svarið við því er kannski ekki svo einfalt því að ef
    marka má orðræðu ríkisstjórnarflokkanna fyrir kosningar er svarið
    algjörlega nei, hreint nei, algjörlega tært nei. Það er allt önnur stefna
    sem er rekin hér en boðuð var fyrir kosningar. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef maður nálgast þessa spurningu hins vegar út frá því að hafa
    kannski dálítið lengi verið að fylgjast með pólitík get ég ekki sagt, frú
    forseti, að það komi mér mikið á óvart að ríkisstjórn undir forystu
    Samfylkingarinnar keyri hér hart á skattahækkanir. Það eru hins vegar
    kannski meiri tíðindi fólgin í því að flokkur sem hefur kennt sig við
    frelsi og frekar hægrimennsku skuli vera sá flokkur sem þarf nú að
    innleiða þetta í gegnum sinn ráðherra, þ.e. hæstv. fjármálaráðherra. Því
    að það er eðlisólíkt í því sem hér er til umfjöllunar og oft er þegar
    verið er að nota frasa eins og: Er þetta ekki alltaf svona? Er ekki alltaf
    helmingurinn af loforðunum svikinn? Er það ekki bara pólitík? Er þetta
    ekki alltaf þannig þegar flokkar lofa einhverju í kosningabaráttu og svo
    þurfa þeir að búa til ríkisstjórn og þá þurfa þeir að miðla málum og eftir
    því sem flokkarnir eru fleiri er málamiðlunin meiri o.s.frv.?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Í þessu tilfelli á þetta hins vegar ekki við því að
    það sem er svo sérstakt við sum af þessum afgerandi loforðum — sem voru
    ekki orðuð neitt loðið — er að landsmenn voru ekki skildir eftir með það
    verkefni að eiga í einhverjum vandræðum með að túlka það sem sagt var. Þau
    voru ekki sett fram með loðnum hætti. Þau voru sett fram með mjög
    heiðarlegum hætti og það var gert eftir kosningar líka. Það er nú kannski
    það sem er svolítið fréttnæmt í þessu öllu saman þegar við ræðum hér
    fjárlagafrumvarpið og svo bandorminn að skýrustu loforðin sem gefin voru
    af ríkisstjórnarflokkunum er varða efnahagsmálin voru nefnilega gefin
    ítrekað eftir kosningar líka og þegar var verið að kynna samstarfið. Þar
    heyrðum við, landsmenn allir, skýr loforð og setningar á borð við: Við
    munum ekki hækka eða færa virðisaukaskattinn upp á ferðaþjónustunni, við
    munum ekki hækka tekjuskatt og skatta á venjulegt, vinnandi fólk. Þið
    þekkið þetta, ágætu landsmenn, þið þekkið þetta allt saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem ég er að benda á hér er að þetta var ítrekað eftir
    kosningar þegar verið var að mynda ríkisstjórnina vegna þess að loforð í
    aðdraganda kosninga hvað varðar þessi mál milli Samfylkingar og Viðreisnar
    voru tiltölulega samhljóða. Það átti að beita þessari frægu sleggju, berja
    niður vexti og verðbólgu og ekki hækka skatta á almenning í þessu landi
    eða fyrirtækin og ekki fara inn í virðisaukaskattsþrepaumhverfi
    fyrirtækjanna. Þetta var allt saman í beinni útsendingu og eflaust mörgum
    Íslendingum í fersku minni. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er það sem er kannski fréttnæmast í þessu því að þau þurftu
    ekki að semja sig frá loforðunum, frú forseti, eins og flokkar hafa
    stundum þurft að gera í gegnum áratugina, að gefa eftir einhvern hluta af
    sínum loforðum til að ná öðrum málum í gegn sem þeir meta mikilvægari og
    komast þannig áfram í valdastöður í samfélaginu til að koma sinni hugsjón,
    a.m.k. að verulegu leyti, áleiðis. Þessir flokkar bjuggu við þann lúxus,
    ef svo má segja, að vera samhljóða hvað þetta varðar í kosningabaráttunni
    og vera samhljóða hvað þetta varðar að loknum kosningum þegar var verið að
    kynna áherslur ríkisstjórnarinnar. Samt, frú forseti, er þetta
    svikið.</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/fundir/raeda/158/rad20260909T194344.html-->

    <ns:mgr>Hæstv. forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á dögunum:
    „Loforð gefin — loforð efnd.“ Þetta er einhver hlægilegasti orðaleikur sem
    hefur átt sér stað það sem af er starfstíma þessarar ríkisstjórnar og er
    af nógu að taka í öllum nýyrðasmíðunum sem ég hygg að þessi ríkisstjórn
    eigi nú Íslandsmet í, a.m.k. innanhúss. Loforð gefin — loforð efnd. Það er
    nefnilega þannig, frú forseti, að loforðin sem voru gefin fyrir kosningar
    og ítrekuð með mjög afgerandi hætti eftir kosningar hafa verið svikin í
    efnahagsmálunum í öllum meginatriðum þegar kemur að því að sækja meira fé
    til landsmanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eðli málsins samkvæmt er búið að ræða hér mikið um baðlónin og
    kílómetragjaldið. Ég hyggst nú láta það kannski að mestu liggja í þessari
    umferð því að ég gerði því nokkuð góð skil í síðustu viku í ræðu þar. Þar
    nefndi ég líka fyrirhugaða sölu, eða eins og það er orðað, aðra ráðstöfun
    á flugstöðvarbyggingunni á Húsavíkurflugvelli sem er auðvitað, ef af yrði,
    alveg ótrúleg skammsýni núna þegar verið er að vinna á fullu með
    Landsvirkjun og stórum erlendum fyrirtækjum að því að koma álveri í
    uppbyggingu af stað á Bakka aftur og Þeistareykjavirkjun er í
    stækkunarfasa. Það er einmitt núna, held ég, mjög mikils virði að fara í
    að lagfæra þetta húsnæði og tryggja það á þessum uppgangstímum sem ég vona
    að séu fram undan, verði þessi flugleggur opinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað sem hefur vakið athygli í umræðunni í dag er auðvitað
    samanburðurinn á þessum flötu 5,2% hækkunum þegar verðbólguspáin á næsta
    ári er 3,6%. Markaðirnir eru að sjálfsögðu búnir að svara þessu strax
    þannig að það þarf ekkert pólitíska fulltrúa hér inni í sal til að velta
    fyrir sér hvort þessi ráðstöfun sé verðbólguhvetjandi eða ekki;
    markaðirnir svöruðu því strax að hún er það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo ég gleymi nú ekki að nefna það, frú forseti, af því að ég
    gleymdi því þegar ég ræddi flugvellina í síðustu viku: Ef það er svona
    nauðsynlegt að selja einhverjar eignir ríkisins — og ég geri ekki lítið úr
    því, ríkið á fullt af eignum sem ég held að ríkið hvorki þurfi að eiga né
    eigi alls ekki að eiga — þá er þetta varla efst á blaði þar, innviðir í
    samgöngumálum þar sem þessi ríkisstjórn hefur nú aldeilis talað um að hún
    ætli að gefa í og réttlætir nánast aðra hverja skattahækkun einmitt með
    átaki í þeim málaflokki. Þá bendi ég t.d. á að ég hygg að ríkisjarðirnar
    séu talsvert vel á þriðja hundrað, þannig að þar er möguleiki á að selja
    umtalsverðar eignir án þess að valda skaða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar hins vegar, af því að tíminn líður svo hratt, frú
    forseti, að víkja aðeins að öðru og fara í orminn sjálfan. Þar er ýmislegt
    að finna því þetta ríður ekki við einteyming, frú forseti. Það sem hefur
    mest verið rætt hér og var rætt hér í síðustu viku er allt saman, eins og
    gengur, kryddað hraustlega núna með orminum. Mig langar að fara, þó ekki
    væri nema bara í einn lið sem varðar það sem við köllum úrvinnslugjald.
    Þar sjáum við hækkanir, frú forseti, sem eru ekkert nálægt þessum 5,2%
    hækkunum, alls ekki. Við erum að sjá t.d. umbúðir úr plasti hækka úr 65
    kr. kílóið í 125 kr. kílóið. Það er 92,3% hækkun, frú forseti.
    Heyrúlluplast hækkar úr 65 kr. í 125 kr., um 92,3% einnig. Mér sýnist
    fljótt á litið að fyrir nokkuð gott kúabú með kannski 120 gripi, eitthvað
    slíkt, oft eru nú nokkrar skjátur þar með, nokkrar kindur, muni þetta
    hækka kostnað við heyskap um u.þ.b. 120.000 kr., bara þessi eina
    breyting.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta heldur bara svona áfram, frú forseti. Þetta tekur engan
    enda. Sólarrafhlöður hækka úr 5 kr. á kílóið í 30 kr. kílóið. Það er 500%
    hækkun, ekki 5,2%. Stór raftæki — en ég viðurkenni áður en ég nefni þá
    tölu, frú forseti, að ég veit ekki hvar mörkin liggja milli þess að
    raftæki sé stórt eða nett; ég geri samt ráð fyrir að hér sé um að ræða í
    það minnsta eitthvað á stærð við þvottavél eða eitthvað slíkt; við erum
    ekki að tala um einhver smátæki — þar erum við að tala um hækkun úr 11 kr.
    í 30 kr. Það er 172,7% hækkun. Lítil raftæki úr 24 kr. í 35 kr., það er
    45,8% hækkun. Kælitæki úr 38 kr. á kílóið í 52 kr. á kílóið. Það er 36,8%
    hækkun. Svona heldur listinn bara áfram, frú forseti. Mér er til efs að
    það hafi í seinni tíð verið gengið eins hraustlega fram í að sækja meira
    fé úr hendi almennings í gegnum tiltölulega lítt sýnilegar
    hækkanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú hefur hækkun á tekjuskatti verið dálítið rædd hér í dag þar sem
    svokallað framleiðniviðmið er tekið af sem er 1% ofan á persónuafsláttinn.
    Það er bein skattahækkun á tekjurnar. En hér er verið að fela alls konar
    hækkanir út og suður í liðum sem kannski hinn venjulegi borgari er ekkert
    að skoða dag frá degi. Meira að segja í liðum sem eru mjög stórir, eins og
    t.d. ETS-kerfinu, sjáum við gjaldið fara úr 10.123 kr. árið sem er að líða
    í 11.035 kr. Það er 9% hækkun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég veit að það er ekki skemmtilegur ræðustíll að fara
    í svona upptalningu og sjálfsagt eru einhverjir sem hafa verið að horfa
    farnir að geispa núna en þetta eru engar smá tölur. Þetta eru engar smá
    prósentur. Ég nefni aftur hérna 500% hækkun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan held ég að það sé ekki hægt annað en að nefna það hér áður
    en ég renn út á tíma að frumvarpið gerir ráð fyrir að verðlagsuppfærsla
    krónutöluskatta muni hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs sem nemur
    einhverjum 0,28%. Þetta virkar kannski ekki stórt. Þetta er samt það stórt
    að við mat á áhrifum hjá einstaklingi sem er til að mynda með 50 millj.
    kr. verðtryggt húsnæðislán leggjast á höfuðstólinn 140.000 kr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef nú farið yfir, frú forseti, ansi marga liði sem eru að
    hækka og sumir hverjir í þannig prósentutölum að það er erfitt að
    hreinlega skilja hvert stefnt er, nema markmiðið sé að engu verði nokkurn
    tíma hent, að allt sem við notum verði eilíft því að allt sem fellur meira
    og minna undir þennan lið, úrvinnslugjald eða Úrvinnslusjóð, tekur
    gríðarlegum hækkunum, alveg gríðarlegum. Vissulega er þessi listi ekki
    tæmandi, frú forseti, langt í frá, en þetta gefur aðeins innsýn í hvað
    verið er að hugsa og hvernig verið er að nálgast verkefnið. Ég minni, því
    að ég á nokkrar sekúndur eftir, á það sem ég nefndi í ræðu í síðustu viku,
    að 32 tonna vörubíll sem er keyrður 100.000 km á ári í til að mynda
    vöruflutningum fyrir landsbyggðina er að fara að hækka um 718.000 kr. á
    hverju ári, frú forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>