<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T18:52:34" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:06:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T18:52:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Við ræðum hér mjög mikilvægt frumvarp sem ber það skrýtna
    heiti að við ræðum um þetta sem bandorminn, en þetta er sem sagt tekjuhlið
    fjárlaganna. Ég verð að byrja á því, frú forseti, að segja að ég sakna
    þess að umræðan hafi ekki verið meiri hér á milli stjórnar og
    stjórnarandstöðu að þessu sinni. Ég held að hæstv. ráðherra sé örugglega
    enn þá í húsi en hann hefur svo sem ekki mikið tekið þátt í umræðunni
    eftir að hann mælti fyrir því. Ég hefði viljað sjá stjórnarliða halda hér
    ræður svo hægt væri að eiga samtal við þá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þekki það alveg. Ég hef stutt ríkisstjórn
    sem hefur lagt fram fjárlagafrumvarp og bandorma og stundum verið að hækka
    skatta og jú, verið með svokallaðar krónutöluhækkanir, sem við höfum verið
    að ræða hér töluvert í dag. Það er alveg þannig að á hverju ári hefur
    orðið uppfærsla í fjárlögum þar sem þessi gjöld hafa tekið hækkunum. Það
    er rétt. Hér lét reyndar forsætisráðherra það líta út þannig í óundirbúnum
    fyrirspurnum í dag að það hefði bara alltaf verið svona. Það er bara alls
    ekki svo. Ef tekin eru síðustu ár, ef við förum aftur á síðasta
    kjörtímabil, þá heyrir það til undantekninga að krónutölugjöldin hafi
    verið hækkuð samsvarandi við verðbólgu síðasta árs, eins og verið er að
    leggja til hér. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er nefnilega ekki þannig að aðilar á
    markaði séu að spá 5,2% verðbólgu á næsta ári, sem betur fer, heldur er
    ríkisstjórnin hér að ná í aukapeninga frá fólkinu í landinu með því að
    hækka krónutölugjöldin um 5,2%, þrátt fyrir að verðbólgan eigi að vera
    minni vegna þess að þau hækkuðu bara um 3,5% síðast. Þá gagnrýndum við þau
    fyrir að nota ekki verðbólgumarkmið Seðlabankans eins og fyrri ríkisstjórn
    hafði gert eftir að kjarasamningar náðust á markaði. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þessi 5,2% hækkun er raunveruleg skattahækkun
    á heimili í landinu og það má ekki bara henda því fram eins og þetta hafi
    gerst á hverju ári. Það er alls ekki svo. Ef þessar tölur eru skoðaðar
    höfum við á síðustu árum verið að horfa í það að lækka þetta minna en
    verðbólguspáin segir til um, vegna þess að það skiptir máli því að þetta
    getur haft þau áhrif að auka enn frekar verðbólguna, sem er það sem
    gerðist.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég minnist þess, frú forseti, að hæstv. forsætisráðherra hafi sagt
    í viðtölum fyrir ekki svo löngu: „Já, kannski fórum við of geyst.“ Ég
    velti fyrir mér: Hvar eru þau varúðarorð núna þegar verið er að horfa á
    5,2%? Reyndar hefur hæstv. forsætisráðherra líka gefið því undir fótinn að
    þetta kynni að taka breytingum vegna þess að það að senda þessi skilaboð
    til vinnumarkaðarins á þessum tímapunkti þegar forsenduákvæðið er brostið
    — við sjáum það núna í fjölmiðlum að flugvirkjar eru að fara í verkfall —
    það er alvarlegt ástand á vinnumarkaði. Þá er útspil ríkisstjórnarinnar að
    segja: Heyrðu, við ætlum að hækka öll okkar gjöld um að lágmarki 5,2%. Það
    er líka búið að fara ágætlega yfir það hér að sumt af því tekur enn
    frekari hækkunum. Svo koma hingað upp þingmenn, stjórnarliðar, og segja:
    Heyrðu, er ekki hægt að biðja um að fyrirtækin í landinu haldi í sér þrátt
    fyrir hækkanir? Ja, er ríkið að gera það með þessum áætlunum? Nei.
    Skilaboðin sem ríkisstjórnin er að senda út á markaðinn með þessum
    aðgerðum sínum, með því að birta þetta svona í fjárlagafrumvarpinu, eru þá
    í rauninni að veita skjól til sveitarfélaga og fyrirtækja í landinu til að
    hækka, svo þau haldi nú örugglega verðgildi sínu, eins og svo oft hefur
    verið notað hér — að geta hækkað verð, hvort sem það eru gjöld
    sveitarfélaganna eða verð á markaði hjá fyrirtækjum. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í mínum huga eru þetta bara stórhættuleg
    skilaboð. Þess vegna hef ég reyndar einhvern skilning á því ef hæstv.
    forsætisráðherra er að gefa því undir fótinn að svo verði kannski ekki. En
    þá spyr ég líka: Bíddu, hvað verður þá um þessi hallalausu fjárlög? Það er
    greinilegt að nefndanna, bæði hv. efnahags- og viðskiptanefndar og svo hv.
    fjárlaganefndar, bíður erfitt verkefni að reyna að ná utan um
    þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætlaði bara að snerta á nokkrum meginþáttum
    þessa frumvarps. Ég er búin að nefna hér þessi frægu 5,2%, sem mér finnst
    stórhættuleg. Þá ætla ég að koma að einhverju jákvæðu. Hér segir að
    fjárhæð sóknargjalda sé fastsett í samræmi við áralanga framkvæmd. Ég ætla
    að fagna því. Ég er ekki búin að stúdera þau nákvæmlega en ég er ein af
    þeim sem hafa talað fyrir því á hverju ári að sóknargjöldin séu hækkuð,
    enda hefur það verið þannig að þingið hefur brugðist við í fjárlögum,
    hækkað sóknargjöldin, en frumvarpið hefur komið aftur ári seinna þar sem
    búið er að taka út þessa tímabundnu hækkun, eins og það hefur verið orðað
    frá fjárlaganefnd. Þannig að ef ráðuneytið er loksins farið að hlusta á
    þingið í þessum efnum og getur bara komið með þetta inni í sinni tölu
    fagna ég því og styð þá framkvæmd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo er þáttur sem hefur verið nefndur: <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0002.pdf-->
    „Breytingar á framleiðniviðmiði við uppfærslu skattleysis- og þrepamarka í
    tekjuskatti einstaklinga“. Auðvitað skilur þetta ekki nokkur maður og
    kannski er það einmitt meiningin með þessu öllu saman, því að í þessum
    ágæta kafla í greinargerðinni er verið að lýsa þessu, að framleiðni á
    hvern starfandi hefur vaxið kerfisbundið hægar en framleiðni á vinnustund
    undanfarin ár. Það er þá vegna styttingar vinnutímans. Þarna er verið að
    fjalla um að þessi hefð hefur verið í lögum að við notum þróun vísitölu
    neysluverðs að viðbættum 1% framleiðnivexti á ári til að hækka þessi þrep.
    En þessi ríkisstjórn ætlar ekki að gera það. Nei, hún ætlar að kötta á
    það. Það þýðir skattahækkanir á allan almenning í þessu landi. Og eins og
    hv. þm. Hildur Sverrisdóttir kom ágætlega inn á hér í andsvari við hæstv.
    fjármálaráðherra er meira að segja sérstaklega tilgreint hérna í
    greinargerðinni að þeir sem hafa notið þessa hvað mest séu þeir sem eru í
    neðstu tveimur skatttíundunum. Ég ætla nú bara að halda því fram: Er það
    ekki bara gott? Er það ekki bara fínt? Viljum við ekki hafa það svoleiðis?
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í andsvari hér fyrr í dag sagði hæstv.
    fjármála- og efnahagsráðherra eitthvað á þá leið: Ja, þetta kemur bara til
    ef laun hækka. Virðulegur forseti. Ég er búin að lesa aftur yfir það sem
    hæstv. fjármálaráðherra lét út úr sér í þessu andsvari til hv. þm. Hildar
    Sverrisdóttur. Ég bara skil ekki hvað hæstv. ráðherra átti við. Þetta er
    skattahækkun enda á hún að skila — eru þetta ekki 3,2 milljarðar sem þetta
    á að skila? Þannig að hér er alveg ljóst að um er að ræða skattahækkun á
    almenning í þessu landi. Og eins og rætt hefur verið hér margoft er þetta
    bara venjulegt fólk. Skattahækkun aftur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo ef ég hleyp kannski á síðasta punktinn í þessum helstu efnum
    frumvarpsins þá er það lækkun endurgreiðsluhlutfalls virðisaukaskatts til
    byggjenda og eigenda íbúðarhúsnæðis af vinnu manna á byggingarstað. Ég hef
    verulegar áhyggjur af þessu vegna þess að það er að verða frost á
    byggingamarkaði. Ég hef mjög oft haldið ræður um stöðu á fasteignamarkaði
    í þessum ræðustól og ég þekkti þetta líka vel áður en ég kom inn á þing,
    hafandi verið að vinna að skipulagsmálum í sveitarfélögunum. Okkar helsta
    vandamál síðustu áratugina hefur verið óstöðugleiki á byggingamarkaði,
    þ.e. þetta er línurit sem fer mjög hátt upp og aftur niður. Okkur hefur
    ekki tekist að halda í þá stöðugu þróun sem þarf að vera á þessum markaði,
    að það sé byggður ákveðinn fjöldi íbúða á hverju ári. Nei, við höfum
    stöðugt verið að hoppa upp og niður í þessu. Jafnvel þó að núna sé
    töluvert framboð af fasteignum, sem hafa ekki selst eins hratt og reynslan
    hefur verið á síðustu árum, þá kann að vera að að einhverju leyti snúi það
    að íbúðum sem ekki er eftirspurn eftir og að það vanti annars konar
    íbúðir. En þetta, að hræra stöðugt í þessari mikilvægu atvinnugrein með
    því að hækka og lækka þetta endurgreiðsluhlutfall, held ég að sé
    hættulegt. Ég er ansi hrædd um að þetta muni bíta okkur fast í
    framhaldinu. Þannig að þó að hér sé verið að horfa til þess að mögulega
    komi einhverjar aðeins meiri tekjur inn í ríkissjóð er ég alls ekki viss
    um það vegna þess að það er allt eins líklegt að þetta dragi bara úr
    framleiðslu á sama tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta voru þeir þættir sem ég ætlaði að fara
    yfir og hnýt um. En mig langar þó að segja, vegna þess að ég á ekki sæti í
    efnahags- og viðskiptanefnd, ég sagði það hér í andsvari áðan, að ég legg
    mikla áherslu á að þeir sem sitja í þessari nefnd fari ítarlega og vel
    yfir þetta frumvarp og ekki síst hvaða rök liggja fyrir ákvörðunum. Ég
    ætla að nefna bankaskattinn því að því hefur verið haldið hér fram að það
    liggi fyrir skýrslur eða úttekt á því að þegar bankaskatturinn var
    lækkaður á sínum tíma hafi það bara ekkert skilað sér, það hafi ekki
    skilað sér í verðlagningu bankanna. Ég held að það sé rangt og hef fyrir
    því ýmsar upplýsingar, þannig að ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd
    til að fara vel yfir þann punkt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég kom inn á hér fyrr í andsvörum þá erum við með verulega
    aukna skatta á banka á Íslandi, meiri en í öðrum ríkjum sem við gjarnan
    berum okkur saman við. Það held ég að sé slæmt. Ég held að það sé líka
    mótsagnakennt út frá því að við tölum um að við viljum aukna samkeppni á
    markaði. Ég myndi líka óska eftir því, vegna þess að hv. þm. Arna Lára
    Jónsdóttir er í salnum og hún er formaður þeirrar nefndar sem fer yfir
    málið, að hún velti aðeins fyrir sér hvort það sé einhver möguleiki á að
    hækkun á bankaskattinum geti ýtt undir einhvers konar þröskuld á vöxt hjá
    minni fjármálastofnunum vegna þess að ég veit að það er frítekjumark, 50
    milljarðar. Getur þetta gert það að verkum að kannski sé ákveðinn
    þröskuldur fyrir þessa nýju aðila sem hafa verið að koma inn á markað, ég
    ætla að nefna Indó sem dæmi, sem hvetur þá til að stækka ekki? Getur það
    mögulega haft áhrif á það að færri treysti sér til að fara inn á þennan
    markað? Ég vona að nefndin skoði þetta vel.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá vil ég líka hér að síðustu nefna fyrirsjáanleika. Við höfum
    rætt þetta töluvert. Við ræddum þetta t.d. varðandi innviðagjaldið, gjald
    á skemmtiferðaskip, sem þá var reyndar búið að fjalla um í alls konar
    skýrslum um ferðaþjónustuna og mikilvægi þess að jafna samkeppnisstöðuna
    þegar kæmi að hótelum og gististöðum og svo skemmtiferðaskipunum. Gjaldið
    var allt of hátt og fór hér í gegnum þingið þannig að fyrirvarinn til
    aðila á markaði var allt of lítill. Fyrirsjáanleikinn var enginn. Það er
    það sem skiptir, held ég, fyrirtæki í landinu hvað mestu máli, að það sé
    fyrirsjáanleiki í aðgerðum ríkisins þannig að þau geti gert sínar áætlanir
    og að þær standist. Þannig að til að mynda er ekki mikill fyrirsjáanleiki
    í hækkun á bankaskatti. Ég vona að við séum alla vega ekki að vísa í það
    að framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar upplýsti hér alþjóð um að hægt væri
    að taka 6 milljarða út úr hækkun bankaskatts. Raunin varð nákvæmlega sú.
    Fyrirsjáanleikinn fyrir byggingaraðilann út af endurgreiðslu á
    virðisaukaskatti er ekki heldur mjög mikill. Þetta höfum við rætt ítrekað
    og ég ætla ekkert að segja að fyrri ríkisstjórn sé saklaus af því að hafa
    hækkað hér skatta eða ekki séð til þess að fyrirsjáanleikinn væri
    nægjanlegur. En erum við þá ekki búin að læra af þeim mistökum? Er það
    ekki eitthvað sem við þurfum að sameinast um, að vera hér með
    fyrirsjáanleika þannig að fyrirtæki hér á landi geti gert áætlanir og
    staðið við þær?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta miklu lengra en
    óska hv. efnahags- og viðskiptanefnd góðs gengis í að fara yfir þetta mál.
    Ég veit að það verður krefjandi en ég vona að þau muni grafa djúpt og
    grafa eftir gögnum og rökum fyrir þeim skattahækkunum sem hér eru lagðar
    til.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>