<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:06:34" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:08:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:06:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir
    ræðuna sína og þær hugleiðingar sem hún hafði. Hún var að kalla dálítið
    eftir gögnum og greiningum, ekki síst þegar kemur að bankaskattinum. Ég
    hef velt því fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi lesið skýrsluna sem Lilja
    Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, lét gera um hvernig
    lækkun á bankaskatti hefði skilað sér þegar skatturinn var lækkaður árið
    2020. Ég er nú bara búin að skima þessa skýrslu en þegar ríkisstjórnin
    þáverandi lækkaði bankaskattinn var auðvitað búið að segja að lækkunin
    myndi skila sér til viðskiptavina og þessi skýrsla var unnin af nefnd þar
    sem m.a. áttu sæti fulltrúar frá SFF og fleirum, mikilsvirt fólk.
    Niðurstaða þessarar nefndar sem birtist í skýrslunni var sú að
    ávinningurinn af lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til viðskiptavina.
    Það auðvitað vekur athygli. Nú erum við að ræða það og þetta er eitt af
    því sem við munum ræða í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og ég heyri það
    að mörgum þingmönnum þykir það eðlilegt að bankarnir velti þessu yfir á
    viðskiptavini. Mér finnst það alls ekki eðlilegt. Mér finnst að við lifum
    í samfélagi og mér sem jafnaðarmanni finnst bara eðlilegt að við hugsum
    þetta þannig að við berum ábyrgð hvert á öðru. Viðskiptavinir íslensku
    bankanna eru íslensk heimili og íslensk fyrirtæki og mér finnst ekkert
    óeðlilegt að fjármálafyrirtæki landsins komi með stjórnvöldum og haldi í
    sér þessari þörf fyrir að velta þessu yfir á viðskiptavini. <ns:bjalla/>
    Mig langar að velta þessum hugleiðingum til hv. þingmanns.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>