<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:08:54" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:10:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:08:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér í
    andsvar. Ég met það mikils að eiga hér samtal við fulltrúa frá
    ríkisstjórnarflokkunum. Ég nefndi þetta varðandi bankaskattinn og ég
    nefndi sérstaklega að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra brást þannig
    við þegar hann fékk fyrirspurn frá fréttamönnum um þetta, hvort búast
    mætti við því að hækkun bankaskatts myndi leiða af sér hækkun gjalda hjá
    bönkum. Ég held að ég hafi tekið alveg rétt eftir, að hæstv. ráðherra
    viðurkenndi að það mætti alltaf búast við því. Hér eru orðin fræg ummæli
    formanns Viðreisnar sem hélt hér ræðu um bankaskatt og fjallaði nákvæmlega
    um að það mætti búast við því að hann færi út í verðlagið. Ég held að það
    sé bara hagfræðilega sannað að það má búast við því að svo sé.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður kemur inn á það að síðasta tilraun hafi ekki skilað
    árangri, þ.e. að lækkunin hafi ekki skilað sér til neytenda. Ég skal
    viðurkenna það að ég er ekki búin að lúslesa þessa skýrslu en það kemur
    fram í fréttinni á Stjórnarráðssíðunni, eins og ég segi, og það er hægt að
    draga þá ályktun að þessi lækkun bankaskattsins hafi ekki skilað sér í
    minni vaxtamun. En ég er líka búin að lesa greinar frá Samtökum fyrirtækja
    í fjármálaþjónustu sem fara yfir hvaða áhrif þetta hafði. Það varð
    vissulega lækkun á gjöldum hjá bönkunum eftir lækkun bankaskattsins. Við
    sáum það á verðskrá bankanna, þau lækkuðu. Ég ætla ekki að vera einhver
    dómari í því hver áhrifin nákvæmlega voru. Ég bara beini því til hv.
    þingmanns og nefndarinnar sem hún fer fyrir að þau skoði þetta vel því það
    virðast vera svolítið skiptar skoðanir. Og eins og ég veit að hv.
    þingmaður varð vör við í morgun á fundinum, þar sem var farið yfir þetta,
    þá ber alls ekki öllum saman um að það sé hægt að fullyrða að lækkun
    bankaskatts hafi ekki skilað sér til viðskiptavina og það eru vissulega
    dæmi um það. Þannig að ég bara hvet hv. þingmann og nefndina til að fara
    vel ofan í þau gögn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>