<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:11:04" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:12:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:11:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir
    gott andsvar. Hann fór víða í ræðu sinni áðan. En mig langar í seinna
    andsvari að nefna það sem hún velti upp, hvort hækkun á bankaskatti gæti
    haft áhrif á möguleika og vöxt minni fyrirtækja til að sækja sér
    lánsfjármagn. Ég er nú ekki sérfræðingur í þessu, enda ekki hagfræðingur.
    En ég ætla samt að leyfa mér að halda að það sem hefði jafnvel meiri áhrif
    á minni fyrirtæki en hækkun á bankaskatti væru 8% stýrivextir. Ég held að
    það hafi meiri áhrif. Ég held, þegar við erum að horfa á þessar
    skattbreytingar sem verið er að gera, að ávinningurinn af því að skila
    hallalausum fjárlögum — sem vonandi verður til þess að Seðlabankinn fer að
    lækka vexti aftur og við komumst aðeins inn á beinu brautina hvað það
    varðar. Það eru auðvitað skýr merki um að verðbólgan geti farið að hjaðna,
    það hefur hægt á launaskriðinu og húsnæðisverð hefur staðið í stað og sums
    staðar lækkað. Þannig að það hefur hægt verulega á og það ættu að skapast
    skilyrði fyrir því að vaxtalækkunarferli geti hafist að nýju. Mitt
    viðbragð við því er að heildarávinningur samfélagsins, og ekki síður minni
    fyrirtækja, er að við náum niður vaxtastiginu. Ég held að það sé stóra
    málið fyrir þessi litlu fyrirtæki og fyrir vöxt þeirra og aðgengi að
    lánsfé. Er hv. þingmaður sammála mér í þessari greiningu minni?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>