<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:12:49" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:15:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:12:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni. Ég er svo
    sannarlega sammála því að það sé stærsta málið fyrir fyrirtæki en ekki
    síður fyrir heimilin að stýrivextir fari lækkandi, algjörlega sammála því.
    Ég held að það sé langstærsta hagsmunamálið. Þess vegna eyddi ég töluverðu
    af minni ræðu í að ræða um 5,2% krónutöluhækkun hjá þessari ríkisstjórn
    því ég óttast að það leiði til þess að vaxtalækkunarferlið, sem ég er
    alveg sammála hv. þingmanni um að vonandi kemur einhvern tímann til þess,
    verði langdregnara og erfiðara en ella, því að það er nákvæmlega það sem
    þessi ríkisstjórn hefur sýnt fram á. Hér var vaxtalækkunarferli
    Seðlabankans hafið. Það stöðvaðist þegar þessi ríkisstjórn sýndi á spilin
    með sinni fjármálaáætlun og hér hafa vextir hækkað aftur. Ég vil meina
    fyrst og fremst vegna aðgerða eða aðgerðaleysis þessarar ríkisstjórnar. Ég
    átta mig líka á því að það eru aðrir utanaðkomandi þættir en þessi
    ríkisstjórn hefur haft ýmislegt í sinni hendi til að tryggja það að
    vaxtalækkunarferlið haldi áfram en hún hefur ákveðið að gera það
    ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þegar ég var að ræða hér um lítil fyrirtæki,
    bara svo það sé alveg skýrt, svo að hv. þingmaður geti unnið með það í
    nefndinni, var ég að horfa til lítilla fyrirtækja á fjármálamarkaði. Það
    var það sem ég var að velta fyrir mér og er bara vangavelta sem ég kasta
    hér inn í umræðuna því að ég sá fyrir mér fyrir nokkrum árum að það gæti
    orðið meiri samkeppni á fjármálamarkaði og þá er ég að vísa í nýjar
    greiðslulausnir. Ég er ekkert endilega að sjá að það verði til nýir bankar
    í þeirri mynd sem við þekkjum banka eins og Arion banka, Landsbanka eða
    Íslandsbanka, en til að mynda eins og Indó og fleiri aðilar sem myndu þróa
    greiðslulausnir. Það er kannski það sem ég ætla að biðja hv. þingmann og
    nefndina að skoða sérstaklega, hvort hækkun bankaskatts — við eigum
    vissulega heila hvítbók um stöðuna á fjármálamarkaði og samkeppni sem var
    einmitt grunnurinn að því þegar við lækkuðum bankaskattinn á sínum tíma —
    gæti haft þau áhrif að draga úr samkeppni á fjármálamarkaði á
    Íslandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>