<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:15:13" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:17:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:15:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að gera hér að umtalsefni í spurningu
    minni til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, þar sem hún vék stuttlega að
    því í sinni ræðu, þessar fréttir af því að flugvirkjar séu búnir að
    samþykkja ótímabundið verkfall frá 23. september. Það kemur fram í frétt á
    bæði mbl og Vísi að mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar á því hvaða afleiðingar
    þetta hafi peningalega sé svona á 1–1,5 milljarðar á dag á meðan
    verkfallið myndi vara, fyrir svo utan væntanlega einhvers konar
    ruðningsáhrif af því, orðsporsmissi og annað slíkt sem erfitt er kannski
    að meta eins og staðan er núna. Mat þetta hjá áðurnefndum Jóhannesi Þór
    Skúlasyni byggir á því að hér koma um 4.500 farþegar á dag til landsins í
    september, u.þ.b. 60% af þeim koma með Icelandair.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hygg að þetta séu svona dálítið vel ígrundaðar bollaleggingar
    og ég held að ég og hv. þingmaður hljótum að vera sammála um að þær tekjur
    sem ekki skila sér til landsins myndi ekki skattstofn. Og í því ljósi
    langar mig að spyrja hv. þingmann, sem er kannski ósanngjarnt en öðrum er
    ekki til að dreifa hér í salnum. Það hefði verið nær að spyrja, frú
    forseti, fulltrúa meiri hlutans að þessu en þeir eru ekki í ræðuhöldum,
    þeir koma í eitt og eitt andsvar en ekki ræður þannig að ég myndi gjarnan
    vilja spyrja hv. þingmann: Gæti ekki verið að sá afar naumi afgangur af
    þessu fjárlagafrumvarpi kunni að vera farinn bara ef verður af þessu
    verkfalli eða það varir í einhvern tíma, því að það er tiltölulega fljótt
    að verða að mjög stórum upphæðum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>