<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:17:38" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:19:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:17:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Jú, ég hygg
    að þetta geti verið hárrétt hjá hv. þingmanni. Við erum lítið hagkerfi og
    við erum viðkvæm fyrir utanaðkomandi áhrifum og ef hér verða stór verkföll
    og ferðamönnum fækkar á Íslandi hefur það mjög mikil áhrif. Ég var nú
    kannski ekki síst að vísa í þessi frægu 5,2% og skilaboðin sem við erum að
    senda út á vinnumarkaðinn með því vegna þess að forsenduákvæði
    kjarasamninganna er brostið, vegna þess að hér ætluðum við að koma okkur
    saman um, ég stóð í þeirri meiningu og fyrrverandi ríkisstjórn gerði það
    vissulega líka þegar gengið var til kjarasamninga, að það ætluðu allir að
    halda í sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst ríkisstjórnin vera að senda út þau skilaboð að hún sé
    ekki að horfa til þess og við vitum það alveg öll hér inni að það er
    einmitt rétt orðað hjá hv. þingmanni að þetta er fjárlagafrumvarp sem
    sýnir fram á afgang. Hann er 5 milljarðar sem er auðvitað lítið í samhengi
    hlutanna þegar verið er að ræða um fjárhag íslenska ríkisins og það má
    mjög lítið út af bregða. Og aftur, þetta er frumvarp, þetta eru ekki orðin
    lög en þegar við afgreiðum þetta frá okkur þá eru þetta orðin lög og hér
    hefur verið sú saga og hefð að frumvörp eins og fjárlagafrumvörp taka
    breytingum í meðferð þingsins, iðulega í þá átt að útgjöld aukast. Ég hef
    oft gagnrýnt það að við þurftum líka að finna hagræðingartillögur í
    meðferðunum. Ég held að afgangurinn sé farinn bara við það að uppreikna
    þetta frumvarp miðað við næstu þjóðhagsspá, sem á að koma fyrir 2. umræðu
    og ég geri ráð fyrir því að hér verði þessi grunnur allur uppfærður.
    Þannig að það þarf raunverulega að fara í einhverjar aðgerðir ef þessi
    vænti afgangur af ríkisrekstrinum á raunverulega að skila sér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>