<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:20:05" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:22:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:20:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að
    bæta við þetta aðeins þannig að þeir sem kunna að vera að hlusta á geri
    sér kannski einhverja grein fyrir stærðunum í þessu. Það var
    sólarhringsverkfall árið 2014. Þá féllu niður 65 flug þannig að ég hygg að
    það geri sér allir sem kynna sér þessar tölur grein fyrir því hversu hratt
    þetta mun skekkja allar væntingar ríkisstjórnarinnar til
    tekjuöflunar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er annað sem mig langar að nefna hér sem kom fram fyrr í dag í
    máli hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, og ég hygg að ef ég man þetta rétt hafi
    ég átt einhver orðaskipti við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur um það hvort
    hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir hefði áhyggjur af þessu, sem varðar það að
    tekjuskattur einstaklinga, eins og þetta er að þróast núna og hefur
    náttúrlega verið að gera í langan tíma, stendur ekki lengur undir
    millifærslukerfinu. Ég get ekki með nokkru móti séð og skil ekki, hvort
    sem það er ríkið, heimili, einstaklingur eða fyrirtæki, að ef þessi
    skattstofn stendur ekki lengur undir greiðslunum úr kerfinu þá hljótum við
    að vera á mjög vondum stað. Við erum þá farin að treysta á alla hina
    skattana til að gera allt hitt, hvort sem það heitir uppbygging innviða,
    sem er mjög í tísku að nota núna, vegakerfið, heilbrigðiskerfið,
    framhaldsskólarnir, grunnskólarnir og svo mætti áfram lengi telja. Það er
    ekkert aflögu frá hinum vinnandi stéttum til að standa undir því það
    stendur ekki einu sinni undir millifærslukerfi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>