<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T19:22:24" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 19:24:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T19:22:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið og tek
    undir það að í dag, og þetta hefur svo sem verið rætt hér áður, erum við
    að tala um raunverulega áskorun okkar til framtíðar. Ef það er þannig að
    hefðbundinn tekjuskattur stendur ekki undir greiðslum okkar úr
    almannatryggingakerfinu erum við í vondum málum. Það er staðan og það þarf
    að horfa til þess. Þá má ég benda á það að þessi ríkisstjórn hefur nú
    breytt útreikningunum varðandi almannatryggingakerfið okkar, fest í sessi
    að það er ekki ákvörðun hér við gerð þessara fjárlaga hvað greiðslur úr
    almannatryggingakerfinu eigi að hækka um þannig að þær hækka núna töluvert
    meira en til að mynda atvinnuleysisbætur, sem mun aftur valda misræmi sem
    ég geri ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti muni þurfa að bregðast við.
    Þetta er einn af stóru þáttunum sem fjármálaráð og fleiri vöruðu við.
    Fulltrúar ríkisstjórnarinnar skelltu skollaeyrum við þessari varúð og
    töldu þetta ekki vera það vandamál sem þó okkar virtustu hagfræðingar í
    fjármálaráði bentu á að gæti orðið. Þannig að ég óttast það og ég held að
    þetta kalli á mikilvægt verkefni hjá okkur að skoða til
    framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við vitum jú að þetta eru helstu áskoranirnar líka í ríkisrekstri
    stóru landanna úti í Evrópu, þ.e. eftirlaunasjóðirnir, því að þar er
    gegnumstreymiskerfi, að þeir standi ekki undir eftirlaunum. Við erum þó
    komin með okkar frábæra lífeyrissjóðakerfi en ef þetta er staðan bara út
    frá greiðslu bóta vegna örorku og veikinda erum við á vondum stað eins og
    hv. þingmaður benti á, ég tek undir það, og það er okkar allra að finna
    sameiginlega lausn á því hvernig hægt er að snúa því við. Með því er ég
    ekki að segja að það eigi endilega að fara í að lækka bætur, ég er ekki að
    segja það, en staðan er verulega alvarleg. Við verðum að finna leiðir til
    að auka hér verðmætasköpun í þessu samfélagi og þannig aukum við tekjur
    hjá ríkissjóði og gerum okkur betur gildandi til þess að standa undir
    þeirri velferð sem ég held að við séum öll sammála um að við viljum
    hafa.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>