<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:33:18" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:35:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:33:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Metnaðarleysið skín glögglega í gegnum þessi þriðju
    fjárlög ríkisstjórnarinnar. Þau fyrstu, árið 2025, fengu þau í arf frá
    fyrri ríkisstjórn og þessi ríkisstjórn skilaði því ári með tugmilljarða
    útgjaldaaukningu. Fyrir árið 2026 boðaði ríkisstjórnin meiri
    útgjaldaaukningu milli ára en nokkur önnur ríkisstjórn hefur boðað. Þá
    snerust blaðamannafundirnir og PR-stuntið um að sama hvað þá ætlaði
    ríkisstjórnin að standast stöðugleikaregluna og það var gert með skatta-
    og gjaldahækkunum. En hvað er að raungerast? Þessi metútgjaldaaukning
    dugði ekki þessari vinstri stjórn því samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að
    hallinn aukist um sirka 40 milljarða á þessu ári og stöðugleikareglan
    sennilega löngu gleymd. En nú erum við komin að fjárlögum fyrir 2027 þar
    sem PR-stuntið snýst um hallalaus fjárlög, sama hvað, og þau skal
    fjármagna með skatta- og gjaldahækkunum þvert á gefin kosningaloforð;
    útgjaldahækkun sem mun hríslast út í allt kerfið með tilheyrandi
    afleiðingum á verðbólgu og vexti. Þetta er sama uppskrift og hleypti
    verðbólgunni af stað í fyrra. Á virkilega að gera sömu mistök og búast við
    því að útkoman verði einhver allt önnur? Algjört metnaðarleysi felst m.a.
    í þeirri staðreynd að ríkisstjórnin virðist ekki hafa lagt mikið á sig til
    að standa við kosningaloforðin. Hún hefði getað sleppt öllum skatta- og
    gjaldahækkunum með því að hagræða sem nemur innan við 2% af útgjöldum
    ríkissjóðs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Nú mæðir á Alþingi og ég legg til að það verði gefið
    svigrúm í þingdagskránni á næstunni svo fjárlaganefnd og efnahags- og
    viðskiptanefnd geti í sameiningu unnið að því að lækka útgjöld fjárlaga
    samhliða því að vinda ofan af skatta- og gjaldahækkunum svo hallalaus
    fjárlög haldi. Þá værum við komin með fjárlög sem gætu stutt við að ná hér
    niður verðbólgu og vöxtum, öllum til heilla.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>