<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:35:34" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:37:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:35:34">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með
    áhuga- og metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar í kjölfar ömurlegra
    PISA-niðurstaðna. Hæstv. menntamálaráðherra virðist skilinn einn eftir með
    vandann og íslensk ungmenni sitja við botninn að ósekju. Ólíkt hafast
    frændur okkar á Norðurlöndunum að þótt staða þeirra sé miklu betri í
    málaflokknum en okkar. Þar bregðast ríkisstjórnir við, boða aðgerðir og
    ráðast í breytingar. Þau skilja að hér er undir tunga þjóðarinnar, lýðræði
    og framtíðarefnahagur. Skeytingarleysi ráðamanna gagnvart menntun barna er
    ein af breytunum sem skýrir þessa hnignun í PISA. Núna hafa 44% 15 ára
    ungmenna ekki grunnfærni í lesskilningi. Þau eiga í erfiðleikum með að
    lesa á milli línanna, draga ályktanir og túlka texta. Takmarkaður
    orðaforði þrengir möguleika þeirra til að hugsa djúpt og mynda með sér
    upplýstar skoðanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þetta er ekki náttúrulögmál. Við erum einfaldlega að bregðast
    börnunum okkar. Ísland mælist nú með 422 PISA-stig í lesskilningi og þar
    af 2% í efstu þrepunum, einungis 2%. Fyrir tíu árum mældist hins vegar
    stór íslenskur skóli með 545 PISA-stig, einn ódýrasti skóli landsins, með
    fjölbreyttan nemendahóp, um 15% nemenda sem ekki voru í skólahverfinu og
    rákust ekki annars staðar. 21% nemenda þessa skóla voru með afburðahæfni.
    Við erum að tala um 422 stig gegn 545, 2% gegn 21%. Munurinn samsvarar
    rúmum sex skólaárum og afburðanemendur voru tíu sinnum fleiri fyrir tíu
    árum. Það er hægt að ná miklu betri árangri með íslensk börn innan
    íslenska skólakerfisins ef vilji er fyrir hendi. Þegar 44% ungmenna ná
    ekki grunnfærni í lesskilningi er aðgerðaleysið ekki lengur afsakanlegt.
    Þetta er vanræksla af verstu gerð. Skammist ykkar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>