<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:38:01" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:40:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:38:01">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Um fiskeldi eru sterkar og ólíkar skoðanir í
    samfélaginu okkar en óháð afstöðu til greinarinnar þá hljótum við að geta
    verið sammála um eitt: Þegar teknar eru stórar og langvarandi ákvarðanir
    um nýtingu náttúruauðlinda Íslands þá þarf stjórnsýslan að vera skotheld.
    Ríkisendurskoðun benti árið 2023 á verulega ágalla þegar kom að
    stjórnsýslu og eftirliti með sjókvíaeldi og lagði fram fjölmargar
    ábendingar um betrumbætur. Nú, þremur árum síðar, er verið að gefa út
    fleiri langtímaleyfi og því hlýtur að vera eðlilegt að spyrja: Hvar
    stöndum við miðað við þessar ábendingar? Hvað hefur verið bætt?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég nefni tvö dæmi varðandi nýjasta leyfið sem ég er hugsi yfir. Í
    fyrsta lagi á samkvæmt lögum að endurskoða áhættumat erfðablöndunar svo
    oft sem þörf er á en eigi síðar en á þriggja ára fresti. Sú endurskoðun
    virðist ekki hafa verið sett fram eða staðfest af ráðherra innan þessa
    frests er nýjasta leyfið varðar og ef eldra mat heldur gildi sínu þar til
    nýtt er lagt fram þá má spyrja sig: Hvaða hvatar eru til að þessi
    endurskoðunarskylda haldi í reynd? Í öðru lagi benti þáverandi
    Skipulagsstofnun árið 2024 á að móta þyrfti skýran ramma um áhættumat
    vegna náttúruvár á strandsvæðum. Það liggur ekki fyrir hvernig ráðherrar
    eða ríkisstjórn hafa brugðist við þessum ábendingum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við starfsmenn stofnana er ekki að sakast. Þeir
    starfa eftir gildandi lögum og reglum hverju sinni en ábyrgðin hvílir á
    herðum ráðherra. Hún hvílir þar þrátt fyrir að það hafi ekki tekist að
    koma frumvarpi um breytingar í gegn í fyrsta skiptið og það þarf að standa
    undir henni. Það er sanngirnismál fyrir fyrirtæki sem þurfa stöðugleika í
    lagaumgjörð. <ns:bjalla/> Það er sanngirnismál fyrir sveitarfélög sem bera
    ólíkar væntingar til þessarar greinar <ns:bjalla/> og ekki síst fyrir
    náttúruna sem við berum sameiginlega ábyrgð á. Við þurfum ekki að vera
    sammála um fiskeldi til að vera sammála um að umgjörðin skipti máli.
    <ns:bjalla/> Það skiptir máli að bregðast við þessum ábendingum og í þeim
    tilfellum þar sem er óvissa eiga varúðarsjónarmið að ráða för.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin
    en þau eru tvær mínútur undir þessum lið.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>