<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:41:00" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:43:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:41:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að gera tilraun til að vera með ofurlitla
    sögustund eða upprifjun á sögu fjárlaga. Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér
    í pontu í gær í andsvari við hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, með
    leyfi forseta: <!--Þetta er tilvitnun í ræðu sem við erum ekki búin að lesa, tekið beint úr talgreini, svo ég sleppi gæsalöppum 
 og lagfæri helstu villurnar, DR. https://innri.althingi.is/kerfi/talgreining-raedna?btr=2026-09-14%2015:38:04--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi verkefnið vil ég í þessu samhengi bara minna á það, og
    biðja hv. þingmenn að skoða söguna, hversu sjaldan ríkissjóður Íslands er
    rekinn réttum megin við núllið, í sárafáum tilfellum frá
    lýðveldisstofnun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og áfram hélt hæstv. ráðherra: </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er bókstaflega talið á fingrum annarrar handar hvenær Alþingi
    hefur treyst sér til þess, og ríkisstjórnir, að skila hallalausum
    fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig rak nú í rogastans og svo sem hef kannski ekki fylgst með
    alveg frá lýðveldisstofnun en ágætlega síðustu áratugina og staðreyndin er
    sú að frá 1991 til framlagningar fjárlagafrumvarps þessa næsta árs eru
    fjárlagafrumvörpin sem hafa verið lögð fram hallalaus 19 talsins. Það er
    ekki teljandi á fingrum annarrar handar. Raunar var það þannig að á
    tímabilinu frá 1997–2019 voru aðeins fimm fjárlög lögð fram með halla. Það
    hittir þannig á að þau voru flestöll í tíð vinstri stjórnar Jóhönnu og
    Steingríms. Þetta er auðvitað ekki stórt atriði en þetta er partur af
    stærri mynd sem mér þykir vera að teiknast upp, að ráðherrar segi í raun
    bara eitthvað. Þetta á við um þá alla. Ég er ekki sérstaklega að leggja
    til atlögu við hæstv. fjármálaráðherra Daða Má Kristófersson heldur finnst
    mér það hafa verið að ágerast með áberandi hætti síðustu misseri að
    ráðherrar segi bara eitthvað og treysti á að komast upp með það. Það er
    himinn og haf á milli þess að bara á tímabilinu frá 1991 til dagsins í dag
    hafi verið lögð fram 19 hallalaus fjárlög og þess sem haldið var fram hér
    í pontu í gær, að þau væru teljandi á fingrum annarrar handar frá
    lýðveldisstofnun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil bara halda þessu til haga og ætli ég
    verði ekki með svona endurteknar innkomur hér undir störfum þingsins
    <ns:bjalla/> það sem eftir lifir vetrar þar sem ég reyni að leiðrétta
    hæstv. ráðherra þegar þeim verður fótaskortur á tungunni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>