<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:43:31" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:45:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:43:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í umræðunni um námsárangur og stöðu barna á
    Íslandi lítum við stundum til þess hvað Finnar og Eistlendingar hafa gert
    til þess að ná góðum árangri. En mig langar að líta aðeins til
    Bandaríkjanna að þessu sinni. Í Mississippi-ríki var lestrarkennsla tekin
    algerlega í gegn í grunnskólunum fyrir rúmum áratug í kjölfar þess að
    ríkið kom afar illa út úr samanburði á námsárangri barna. Skemmst er frá
    því að segja að algjör viðsnúningur hefur orðið. Teknar voru upp nýjar
    aðferðir við lestrarkennslu og markmiðið er að barn hafi öðlast nógu mikla
    færni eftir þriðja bekk í grunnskóla til að það geti farið að lesa sér til
    gagns. Það er sem sagt gengið út frá því að börn séu búin að læra að lesa
    eftir þriðja bekk og fari nú að lesa til að læra. Hafi barnið ekki náð
    ákveðnum færniviðmiðum í lestri þá færist það ekki upp í fjórða bekk
    heldur fer aftur í þann þriðja og þetta á við um 6–10% barna í ríkinu.
    Kröfurnar þarna um hafa jafnvel verið auknar á síðastliðnum árum. Nú er
    svo komið að Mississippi, sem var í næstneðsta sæti meðal ríkja
    Bandaríkjanna þegar að lestrarfærni grunnskólabarna kom, er nú komið í hóp
    þeirra tíu efstu. Já, það er hægt að fara ýmsar leiðir en óhætt er að tala
    um, eins og það er stundum kallað, kraftaverkið í Mississippi og við ættum
    kannski að gefa því nánari gaum. En þessi áhersla á að börn nái ákveðinni
    færni sem fyrst rímar einmitt vel við stefnu farsældarlaganna á Íslandi
    sem við ræðum hér síðar í dag þar sem snemmtæk íhlutun er meginstef sem
    gengur m.a. út á að börn séu gripin í skólakerfinu áður en vandi þeirra
    verður of mikill. Ræðum þetta nánar, en áfram íslensk börn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>