<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:45:47" skst="EÁs" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:47:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:45:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í dag, 15. september, er alþjóðlegur dagur
    lýðræðis. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað árið 2007 að helga
    þennan dag lýðræðinu. Dagsetningin vísar til þess að 15. september 1997
    samþykkti Alþjóðaþingmannasambandið almenna yfirlýsingu um lýðræði.
    Tilgangurinn er einfaldur en mikilvægur: Að minna okkur á gildi lýðræðis
    og að það þurfi stöðugt að hlúa að því og efla. Sjaldan hefur verið jafn
    rík ástæða til þess og nú. Við lifum á tímum hraðra breytinga, óvissu og
    átaka. Víða eiga lýðræði og mannréttindi undir högg að sækja. Sumir halda
    að lýðræði snúist bara um kosningar. Staðreyndin er sú að það snýst líka
    um hvernig samfélag við viljum vera og þess vegna er barátta gegn rasisma,
    fordómum og hatursorðræðu líka lýðræðismál. Það sama á við um réttindi og
    öryggi hinsegin fólks. Lýðræði verður ekki sterkt nema það sé pláss fyrir
    okkur öll.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Alþingi hefur áður fjallað um að minnast
    dagsins sérstaklega. Fyrrverandi þingmaður, Þuríður Backman, lagði fram
    þingsályktunartillögu þess efnis á 141. löggjafarþingi. Síðar endurflutti
    fyrrverandi þingmaður, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hana í tvígang, í
    síðara skiptið ásamt fyrrverandi þingmönnum, Brynhildi Pétursdóttur,
    Birgittu Jónsdóttur og Össuri Skarphéðinssyni. Kannski er kominn tími til
    að taka upp þennan þráð aftur. Með sæti hér á Alþingi fylgja ekki bara
    völd og áhrif. Orð okkar hafa vægi og þeim fylgir ábyrgð; ábyrgð á því
    hvernig við tölum, mætum ágreiningi og hvort við byggjum upp traust eða
    brjótum það niður. Það er líka hluti af því að standa vörð um lýðræðið sem
    er ekki sjálfgefið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>