<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:47:57" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:49:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:47:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við erum að laga Ísland og vinna á
    innviðaskuldinni sem birtist landsmönnum á margan hátt. Innviðaskuldin er
    einna sýnilegust í vegakerfinu, sem veikir samkeppnishæfni þjóðarinnar.
    Fjárfesting í samgönguinnviðum er ekki nema 0,6% af landsframleiðslu sem
    er einna minnst hjá ríkjum í OECD. Minna en 40% vegakerfisins voru metin í
    góðu ástandi af Vegagerðinni þegar ríkisstjórnin tók við. Engin
    samgönguáætlun hafði verið samþykkt frá árinu 2020 og engar
    jarðgangaframkvæmdir frá því hafist var handa við Dýrafjarðargöng árið
    2017, vanfjármögnuð vetrarþjónusta og svo mætti lengi telja. Þessu erum
    við að breyta. Samgönguáætlun var samþykkt í sumar. Stóru fréttirnar eru
    þær að viðhald vega, sem var 12,8 milljarðar árið 2024, verður 17,6
    milljarðar á næsta ári. Aukning um 4,8 milljarða. Er þetta nóg? Nei. En
    skiptir þetta máli? Já. Það tekur tíma að vinna á tæplega 280 milljarða
    innviðaskuld í vegakerfinu. Fullfjármögnuð vetrarþjónusta er einnig
    nýlunda í samgönguáætlun. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Sagðar hafa verið fréttir af því að það sé verið að draga saman í
    framlögum til samgöngumála. Það er hins vegar ekki rétt. Þessi ríkisstjórn
    er að bæta í. Þær tölur sem hafa verið nefndar um meintan samdrátt felast
    í því að það er verið að fresta framlagi til Vegagerðar í tengslum við
    Hvammsvirkjun og fresta framlögum til Betri samgangna þar sem nægar
    uppsafnaðar heimildir eru til til að standa undir framkvæmdum næsta árs.
    Stóra byltingin í samgöngumálum er stofnun innviðafélagsins Göng og brú,
    en á næstu dögum fer fram fjárfestingardagur á vegum félagsins þar sem
    koma fulltrúar frá sumum af stærstu verkfræðistofum og innviðafjárfestum í
    Evrópu vegna áhuga þeirra á að koma að verkum eins og Sundabraut og
    tvöföldun Hvalfjarðarganga, loksins. Þannig að við erum loksins að sjá
    framkvæmdir á þessum verkefnum sem við erum búin að horfa á í tugi ára.
    Þannig að það eru bjartir tímar í innviðauppbyggingu fram undan og ég er
    mjög spennt að sjá hvað verður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>