<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:50:09" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:52:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:50:09">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ríkisstjórnin er að stoppa í fjárlagagatið og skila
    hallalausum fjárlögum. Til að ná því markmiði er mikilvægt að gæta aðhalds
    og forsjálni í meðferð opinbers fjár. Þá er ekki síður mikilvægt að horfa
    til leiða sem við getum í sameiningu beitt til að gera eina krónu að
    tveimur, þ.e. að vaxa þannig að það verði auðveldara að ná þessum endum
    saman. Ein þeirra leiða sem blasir við er að draga úr því að óunninn afli
    sé fluttur úr landi í körum, staflað í kör og fari í vinnslu erlendis til
    verðmætaaukningar þar. Hér er ekki verið að tala um einhverjar baunir
    heldur marga milljarða króna í verðmætaaukningu innan lands á hverju
    einasta ári. Þarna eru tækifæri, frú forseti. Með aukinni fullvinnslu afla
    hér heima verður til aukinn virðisauki í beinhörðum gjaldeyri, þjóðarbúinu
    til heilla. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er einmitt að finna frumvarp
    frá hæstv. atvinnuvegaráðherra sem ætlað er að stuðla að því að sjávarafli
    verði í auknum mæli unninn hér heima. Það eru fjölmargar leiðir til þess,
    t.d. með því að tryggja að allur afli sem landað er hér á landi skuli
    seldur á fiskmarkaði ef útgerðarfyrirtæki er ekki samtengt vinnslu, sem
    það fær til vinnslu. Með því er tryggt að innlendar vinnslur geti þá boðið
    í afla sem færi að öðrum kosti til vinnslu annars staðar erlendis. Til að
    varðveita og auka orðspor íslenskra sjávarafurða er nauðsynlegt að tryggja
    gæði afurðanna þannig að þeir sem höndla með fiskinn hafi starfsleyfi og
    búi að lágmarki þannig um afurðirnar að hráefnið spillist ekki. Í Færeyjum
    er útgerðum gert að landa a.m.k. 30% alls afla á markað. Þessi einfalda
    regla tryggir gagnsæi og rétt uppgjör sjómanna og gjöld til hafna.
    <ns:bjalla/> Sanngjörn verðlagning skilar bæði sjómönnum og hinu opinbera
    ávinningi og er besta leiðin til að sporna við milliverðlagningu.</ns:mgr>

    <!--hlusta á 13:51:30 - fær til vinnslu-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>