<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:52:40" skst="PawB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:54:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:52:40">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fyrir meira en 1700 árum glímdi Rómaveldi við
    sama vandamál og þjóðir glíma við enn í dag, verðbólgu. Keisararnir höfðu
    rýrt verðmæti gjaldmiðilsins til að fjármagna vaxandi útgjöld ríkisins,
    aukin framlög til hersins og sístækkandi embættismannakerfi. Ríkið
    minnkaði silfurinnihald myntarinnar og sló fleiri myntir. Eins og við var
    að búast fóru hlutir að hækka í verði. Díókletíanus keisari brást við af
    hörku árið 301 og setti tilskipun um hámarksverð; hann bannaði
    verðhækkanir gegn hörðum viðurlögum.<!--Hann segir þetta keisaranafn mjög óljóst en þetta passar ef maður miðar við
ártalið, hann var við völd á þessum tíma. / ii--> Og höskuldarviðvörun: Þetta
    gekk ekki. Ég veit að ég er kannski fullmikið að líta í baksýnisspegilinn,
    frú forseti, og þetta er ekki gert til að koma höggi á fyrri ríkisstjórn
    Rómaveldis heldur til að benda á þá einföldu staðreynd að verðbólga stafar
    af því að ríkið setur of mikið af peningum í umferð og það er lítið unnið
    með því að krukka í verðinu. Rótin er skortur á aga og of mikill halli á
    ríkissjóði. Við lögum verðbólguna með því að laga hallann. Þess vegna er
    ég einkar glaður yfir því að við skulum ná að leggja fram hallalaus
    fjárlög heilu ári fyrr en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Við lofuðum og
    vorum kosin til þess að ná niður vöxtum og verðbólgu. Okkar stærsta og
    mikilvægasta framlag til þess er einmitt að skila hallalausum fjárlögum.
    Þetta er okkar mikilvægasta framlag til heimilanna, til atvinnulífsins og
    sveitarfélaganna. Allir þessir aðilar munu njóta góðs af stöðugu verðlagi
    og lægri vöxtum. Ég hef lengi talað fyrir því að upptaka annars
    gjaldmiðils sé leið til að ná þeim markmiðum varanlega. Ég er enn á þeirri
    skoðun. En óháð því er fyrsta skrefið alltaf það sama, að ná traustum
    tökum á fjármálum hins opinbera. — Forseti. Ég hef lokið máli
    mínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>