<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:54:51" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:57:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:54:51">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er kominn nýr frasi í handbók ríkisstjórnarinnar
    ofan á aðhald á tekjuhlið og að stoppa í glufur. Sá nýjasti er skynsemi í
    tekjuöflun. En hvernig birtist þessi skynsemi í tekjuöflun, frú forseti,
    af hálfu ríkisstjórnarinnar núna þegar til að mynda ferðaþjónustan á í vök
    að verjast og horfir fram á erfiðari tíma en hafa verið? Jú, núna akkúrat
    þegar gefur á bátinn þá leggst hún á ferðaþjónustuna af fullum þunga og
    einkum og sér í lagi á landsbyggðinni. Ég get rökstutt þetta með vísun í
    tæplega 16% hækkun á kílómetragjaldinu. Ekki eykur það ferðavilja
    ferðamanna lengra út á land til þeirra staða sem lengst eru frá miðsvæðinu
    sem er í kringum millilandaflugið þar sem líklega langflestir koma inn og
    ég hygg að Icelandair eigi þar um 60%, jafnvel ríflega það, af
    fólksflutningum til landsins. Þar er ég að vísa til svæða eins og
    Vestfjarða eða Norðurlands, Norðurlands eystra og Austurlands. Hvar er enn
    þá þyngra ráðist á svæðið? Þar eru baðlónin undir sem fá á sig færslu í
    virðisaukakerfinu úr 11% í 24%, sem þýðir í sumum tilfellum hugsanlega
    tekjutap á hverju ári upp á milli 40 og 60 milljónir. Ég er að vísa til
    staða eins og Vakar. Ég er að vísa til staða eins og sjóbaðanna á Húsavík,
    Skógarbaðanna við Akureyri, jarðbaðanna í Mývatnssveit og Fjörubaðanna á
    Hauganesi. Þetta eru staðirnir sem núna eiga að greiða fyrir hið meinta
    hallaleysi í fjárlagafrumvarpinu. Það eru fundnir nokkrir staðir úti á
    landi þar sem hefur tekist að byggja upp eitthvað sem er arðbært en er þó
    rekið hluta úr ári með tapi. Þeir skulu greiða meira. Það mun kosta störf
    og það mun líklega kalla á lokanir, frú forseti, á viðkomandi stöðum hluta
    úr ári.<!--Spurning með stóra og litla stafi í böðunum. Jarðböðin við Mývatn, heita þau. Sjóböðin heita Geosea – sjóböð.--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>