<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:57:21" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 13:59:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:57:21">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. <ns:skáletrað>Morgunblaðið </ns:skáletrað>hefur
    undanfarið fjallað um það hvernig íslenska velferðarkerfið, fjármunir
    íslenskra skattgreiðenda, er misnotað af útlendingum. Umfjöllunin hefur
    m.a. snúið að útlendingum sem setjast að hér á landi og þiggja
    fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum og aðrar bætur án þess að hafa lagt
    nokkuð til samfélagsins. Ríkissjóður endurgreiðir sveitarfélögum í
    ákveðnum tilvikum fjárhagsaðstoð sem þau veita erlendum ríkisborgurum. Ég
    lagði einmitt fram fyrirspurn hér á liðnum þingvetri um fjárhæðirnar. Í
    svarinu kom fram að endurgreiðslurnar voru yfir 12 milljarðar á árunum
    2020–2024. Í minnisblaði Reykjavíkurborgar til þingsins í vor kom fram að
    tæp 70% þeirra sem fengu fjárhagsaðstoð í febrúar síðastliðnum voru
    erlendir ríkisborgarar og að hlutfall útlendinga hefði verið að aukast
    jafnt og þétt. Í svarinu kom líka fram að engar upplýsingar lægju fyrir um
    ríkisföng þessara hópa sem endurgreitt væri vegna eða um kyn og aldur
    þeirra. Þáverandi hæstv. ráðherra, Inga Sæland, svaraði því jafnframt að
    hún hygðist endurskoða endurgreiðslureglurnar og manni virðist vera full
    þörf á því. Það ætti að vera forgangsmál stjórnvalda að bæta
    upplýsingaöflun, greiningu og upplýsingamiðlun um málefni innflytjenda.
    Stjórnvöld á Norðurlöndum safna slíkum upplýsingum skipulega saman og
    miðla þeim, enda er markmiðið að fylgjast með og meta árangur af aðlögun
    innflytjenda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef ásamt fleiri þingmönnum Sjálfstæðisflokksins lagt enn á ný
    fram tillögu til þingsályktunar um að við komum okkur upp mælaborði í
    málefnum innflytjenda. Vonandi náum við fyrr en seinna eyrum ráðamanna um
    að mikilvægt sé að koma upp mælaborði til að fylgjast með árangri af
    aðlögun innflytjenda hér á landi, m.a. með framlagi þeirra til íslensks
    samfélags.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>