<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T13:59:36" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:02:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T13:59:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef fengið nóg. Með leyfi yðar: „Grocery
    store, bakery, lunch, menu, street food, take away, open, closed.“ Þessi
    helst til kunnuglegu orð eru rétt svo toppurinn á ísjakanum þegar kemur að
    ótæpilegum ágangi enskunnar í öllu okkar daglega umhverfi, enska alls
    staðar á öllum skiltum um allt land, sums staðar á kostnað íslenskunnar
    sem hvergi sést. Þetta hefur stórversnað þannig á allra síðustu árum að
    enskan virðist sums staðar hafa unnið fullnaðarsigur. Við erum, vona ég,
    sammála um að svona eigi þetta ekki að vera en við höfum ekki náð að koma
    í veg fyrir þetta. Það hefur komið á daginn að það hefur ekki dugað að
    hvetja fyrirtæki og stofnanir til að nota íslensku, þau nota ensku samt.
    Það hefur ekki dugað að hafa meginreglu í lögum um að auglýsingar skuli
    vera á íslensku. Úr því að þær mega líka samkvæmt lögum vera bara á ensku
    ef þær eiga að höfða til erlendra neytenda þá skáka allt of margir í því
    skjóli og hafa bara allt á ensku. Nei, þessi ráð hafa ekki dugað. Það er
    tímabært núna að við horfumst í augu við veruleikann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er í grunninn tvennt í stöðunni. Annaðhvort höldum við áfram
    að vona að þetta mögulega skáni af einhverjum ástæðum, með öðrum orðum,
    leyfum þessu einfaldlega að viðgangast þar til, ja, að nánast ekkert
    bendir til þess lengur í almenna rýminu að við séum í landi þar sem hið
    opinbera tungumál er íslenska. Þetta er einn kostur. Hinn er sá að við
    grípum til okkar ráða og beitum þeim tækjum sem við höfum hér á Alþingi
    Íslendinga, þ.e. íslenskum lögum og það er mín tillaga. Ég hef nú lagt
    fram frumvarp sem er mjög einfalt að efni. Þar er lagt til að auglýsingar
    á Íslandi skuli vera á íslensku, punktur. Önnur tungumál mega vera með
    enda stundum ástæða til þess. En íslenskan verður að vera og íslenskan
    verður að vera meira áberandi. Þetta gildir vel að merkja líka um skilti.
    Matvöruverslun var það, virðulegur forseti, ekki „grocery store“. Við þá
    sem heyra þetta og hugsa að þetta sé kannski svolítið vel í lagt,
    <ns:bjalla/>vil ég spyrja á móti: Hversu langt á þetta að ganga áður en
    við bregðumst við? <ns:bjalla/> Tíminn er núna. Þetta er spurning um
    sjálfsvirðingu okkar sem þjóðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>