<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:02:18" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:04:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:02:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Fyrir rétt um hálfum mánuði efndi ríkisstjórnin til
    þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsins. Fyrir
    kosningarnar var það helsta viðkvæði stjórnarliða að segjast treysta
    þjóðinni. Treysta þjóðinni. Atkvæðagreiðslunni var reyndar hrundið af stað
    þrátt fyrir að einn stjórnarflokkanna hefði ítrekað lýst andstöðu sinni
    við aðild að Evrópusambandinu og margsinnis lagt fram tillögu um brottfall
    umsóknar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hæstv. utanríkisráðherra
    tók alla stjórn í þessu máli og gekk þar í fylkingarbrjósti af hálfu
    ríkisstjórnarinnar. Hæstv. forsætisráðherra sparaði sig mjög í umræðum í
    aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Hún tók enga forystu í málinu, enga, og
    ekki heldur eftir atkvæðagreiðsluna. Hana lét hún utanríkisráðherranum
    eftir sem gekk fram af offorsi og hefur rýrt sig að áliti og trausti bæði
    í Brussel og Washington. Hæstv. utanríkisráðherra á ekkert erindi lengur í
    sínu embætti og henni væri sæmst að segja sig frá því þegar í
    stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hlustaði ríkisstjórnin á þjóðina þegar allt kom til alls? Hlustaði
    hún? Nei, það voru orðin tóm. Þau hafa reyndar haldið fyrir bæði eyru í
    hálfan mánuð. Þrátt fyrir að þjóðin hafi alfarið hafnað Evrópuvegferð
    ríkisstjórnarinnar streitist hún á móti því að draga umsóknina til baka.
    Þar hefur hæstv. forsætisráðherra einnig eftirlátið forystuna til formanns
    Viðreisnar í stað þess að gera hið augljósa: Fara eftir skýrri niðurstöðu
    atkvæðagreiðslunnar. Hyggst ríkisstjórnin, undir forystu utanríkisráðherra
    Viðreisnar, hefna sín á þjóðinni með því að gera Evrópureglur rétthærri í
    íslenskum lögum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>