<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:04:36" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:06:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:04:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að halda hér áfram með flokk minn um
    sögulegar staðreyndir og samhengi hluta sem ég byrjaði á fyrr í þessari
    umræðu um störf þingsins. Ég vil vekja athygli á prýðisgrein sem birtist í
    <ns:skáletrað>Morgunblaðinu</ns:skáletrað> í dag eftir Gunnar Ármannsson
    lögmann þar sem Gunnar fjallar um fyrirhugaðar breytingar á
    virðisaukaskattsendurgreiðslu fyrir vinnu á byggingarstað við
    íbúðarhúsnæði. Gunnar bendir þar réttilega á að virðisaukaendurgreiðslan
    vegna íbúðarhúsnæðis eigi sér 36 ára sögu. Hún kemur til þegar
    virðisaukaskattskerfið er innleitt 1. janúar 1990 og er þá hugsuð til þess
    að ekki verði veruleg hliðrun í kostnaði við framkvæmdir við
    íbúðarhúsnæði, eins og segir í lögskýringargögnum á þeim tíma, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--Sannreynt, blaðsíða 16 í Morgunblaðinu 15. september 2026. / ii
https://www.mbl.is/mogginn/bladid/grein/1920387/-->

    <ns:mgr>„Í lögskýringargögnum frá 1989 kom fram að með endurgreiðslunni
    yrði áhrifum skattsins á vinnuþáttinn að fullu mætt, sem ella hefði leitt
    til 9% hækkunar á byggingarvísitölu.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað þetta samhengi sem þessi áform
    ríkisstjórnarinnar verða að skoðast í. Nú halda þeir sem tala fyrir þessu
    stórundarlega fjárlagafrumvarpi og bandormi því fram að það sé bara verið
    að loka glufum, draga úr undanþágum og jafna leikinn. Í þessu tilviki sem
    varðar virðisaukaskatt fyrir vinnu við íbúðarhúsnæði var þetta algjörlega
    gert með galopin augun til að bregðast við breytingum á skattkerfinu þegar
    virðisaukaskattskerfið er tekið upp og söluskatturinn aflagður. Í þessu
    samhengi vil ég biðja stjórnarliða að kynna sér þessar staðreyndir og
    gjarnan lesa ágæta grein Gunnars Ármannssonar í
    <ns:skáletrað>Morgunblaðinu</ns:skáletrað> í dag vegna þess að umræðan
    hefur byggt á yfirgripsmikilli vanþekkingu á því hvernig þessi
    endurgreiðsla er til komin. Ég held að það væri til nokkurs unnið ef okkur
    tækist að stilla það af hér í umræðu um fjárlög og bandorm næsta
    árs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>