<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:06:52" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:08:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:06:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="26">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Eitt er sagt en annað gert. Ríkisstjórnin segist vera
    að taka til en staðreyndin er að hún bætir bara í útgjöld. Hún segist ekki
    ætla að hækka skatta en hækkar svo skatta. Ríkisstjórnin segist vera að ná
    tökum á verðbólgunni en allar aðgerðir sem hún fer í benda til þess að
    verðbólga muni aukast. Ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir,
    sérstaklega Samfylking, sögðu í kosningabaráttunni að ESB væri ekki á
    dagskrá en eftir kosningar er það orðið aðalmálið. Þau segjast vera að
    sýna aðhald en það er að mestu bókhaldslegs eðlis þar sem framkvæmdum er
    frestað og felldar eru niður vannýttar fjárheimildir. Þau segja að það
    verði enginn á biðlista eftir hjúkrunarrýmum í lok aðgerðaáætlunarinnar en
    hver er staðreyndin? Enginn á biðlista miðað við markmið
    ríkisstjórnarinnar sem er að 75% aðila sem eru með færnimat fái pláss.
    Ekki vitum við hvað á að gera við hin 25% en blákalt segja þau að enginn
    verði á biðlista. Ríkisstjórnin segir að nú verði notast við tölustafi í
    stað bókstafa í skólum landsins en staðan er sú að 8 er ekki 8 heldur eru
    tölustafirnir tengdir með einhverjum óskiljanlegum hætti við gamla
    bókstafakerfið. Þau segjast ætla að vinna með hagræðingartillögur frá
    almenningi en þær virðast týndar. Þau segjast vera í virku samtali við
    verkalýðsforystuna en það kannast enginn við það á þeim bænum. Þau segjast
    vilja gott samstarf milli minni og meiri hluta í þinginu en hver er
    raunin? Það virðist bara vera þegar meiri hlutanum hentar. Hvað var sagt í
    fyrra? Lykilatriði að stöðugleikareglan myndi standast, þau myndu gera
    allt sem þyrfti til að standast stöðugleikaregluna. Svo gátu þau ekki
    hamið sig í útgjöldum þannig að það er ekki að fara að takast.
    Stöðugleikareglan er löngu gleymd og þá segja þau: Núna ætlum við, sama
    hvað, að hafa hallalaus fjárlög. Trúir því einhver miðað við
    söguna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>