<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:09:08" skst="VíðR" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:09:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:09:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="28">
      <ns:málsheiti>orð þingmanns í störfum þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ágæti forseti. Mig langaði að vekja athygli forseta á því að hér í
    störfum þingsins áðan kom hv. þm. Karl Gauti Hjaltason fram með alvarlegar
    ásakanir og óskir um afsögn utanríkisráðherra. Eitt af því fyrsta sem mér
    var kennt hér í þingsal var að þegar við hér í ræðustól ætlum að taka
    fyrir ákveðna þingmenn er þeim gefinn séns á því að vera í þingsalnum til
    að svara fyrir þær sakir sem eru á þá bornar. Mér finnst það góður siður
    og ég hvet forseta til að beita sér fyrir því, þegar slíkt er í umræðu, að
    tryggja það að viðkomandi ráðherrar eða þingmenn séu í salnum til að geta
    svarað fyrir þær ásakanir sem eru á þá bornar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>