<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:11:31" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:12:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:11:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="28">
      <ns:málsheiti>orð þingmanns í störfum þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Víðis
    Reynissonar, að það er siður hér á þinginu, ekki síst í störfum þingsins
    þar sem er alla jafnan ekki auðvelt að svara fyrir sig, að þyki þingmaður
    vega að með einhverjum hætti eða gagnrýna sérstaklega einhvern ákveðinn
    þingmann þá er sá siður, og hann er góður, að láta viðkomandi vita svo
    hann geti þá sett sig á mælendaskrá og brugðist við. Ég hygg meira að
    segja að ég hafi verið einn af þeim sem pikkuðu einhvern tímann í hv. þm.
    Víði Reynisson út af umræðu um slíkt atvik hér í fyrravetur. Það er þó sá
    reginmunur á, svo því sé haldið til haga, að þetta gildir alla jafna ekki
    um ráðherra því að við þingmenn höfum yfirleitt ekki tækifæri til að eiga
    samskipti við ráðherra hér í störfum þingsins. Við getum alveg farið í
    skjölin hérna og skoðað það að hér fá ráðherrar ítrekað á sig beina
    gagnrýni frá óbreyttum þingmönnum án þess að það sé talið vega að þessum
    góða sið okkar hér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>