<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:12:50" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:14:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:12:50">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="28">
      <ns:málsheiti>orð þingmanns í störfum þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Tíminn getur verið knappur þegar maður er að leita að
    hlutum í þingskapalögunum. En það er hárrétt að hér er það ekki bara til
    siðs heldur er beinlínis gert ráð fyrir því í þingsköpum að þingmenn séu
    látnir vita og gefinn kostur á að mæta hér til umræðu þegar þannig háttar
    til. Ég held að það sé rétt sem hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson sagði áðan
    að það væri munur á þingmönnum og ráðherrum í þeim efnum í ljósi eðlis
    starfa ráðherra, að þau séu linnulaust undirorpin gagnrýni og sennilega
    aldrei meira en nú í tíð þessarar ríkisstjórnar af eðlilegum ástæðum. En
    þetta er hárrétt og þetta hefur komið oftar upp síðustu tvö þing heldur en
    ég man eftir á þingunum þar á undan, að þingmenn hafi ekki fengið viðvörun
    áður en um þá er rætt í störfum þingsins. <ns:bjalla/> En ég vil bara
    halda því til haga að störf ráðherra eru með allt öðrum hætti til
    ígrundunar og gagnrýni hér <ns:bjalla/> í ljósi þess að þeir sitja í
    skjóli meiri hluta þingsins hverju sinni og ég vildi bara halda þessu
    sjónarmiði til haga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>