<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:14:23" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:15:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:14:23">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="28">
      <ns:málsheiti>orð forseta í störfum þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í framhaldi af því sem hv. þm. Bergþór Ólason nefndi
    varðandi það að hafa ekki samúð með ráðherra þá vil ég vekja athygli
    forseta á því að hæstv. fjármálaráðherra brigslaði mér um það hér í
    andsvörum í gær að ég væri ekki að fara rétt með. Staðreyndin var sú að ég
    var að fara alveg rétt með. En hvernig gerir hann þetta? Hann gerir þetta
    í andsvörum þegar ég hafði ekki tök á því að koma aftur upp. Þetta var
    hæstv. ráðherra sem hegðaði sér með þessum hætti. Mér finnst þetta ekki
    gott. Ég vil líka nota tækifærið til að benda forseta á það að nú er það
    að gerast ítrekað, sama og á fyrra þingi, að hæstv. ráðherrar koma hér og
    snúa út úr í stað þess að svara spurningum. Hvorki hæstv.
    utanríkismálaráðherra né hæstv. forsætisráðherra geta svarað þeirri
    einföldu spurningu hvort þeir og utanríkismálaráðuneytið telji að Ísland
    sé umsóknarríki að Evrópusambandinu. Það er auðvitað óboðlegt að við
    þurfum að koma hér trekk í trekk og nota spurningarnar sem við fáum til að
    spyrja aftur sömu spurninga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>