<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:16:10" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:31:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:16:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum
    lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, svokallaðan bandorm. Þegar ríkið
    þarf meiri tekjur eru í grunninn tvær leiðir færar. Önnur er að taka
    stærri hluta af þeim verðmætum sem þegar eru til í samfélaginu. Hin er að
    skapa skilyrði fyrir því að verðmætin verði meiri, auka verðmætasköpun. Í
    rauninni er miklu einfaldara að fara fyrri leiðina. Alþingi getur með
    einni lagabreytingu hækkað skatt eða gjald og fjármálaráðuneytið getur
    reiknað nokkuð auðveldlega hverju það skilar í ríkissjóð á næsta ári. Fólk
    sér og skilur þessar tölur. En það er erfiðara að stækka hagkerfið. Það
    tekur tíma að auka framleiðni, laða fram fjárfestingu, byggja upp
    fyrirtæki og fjölga störfum. En það er einmitt sú leið sem skapar
    varanlegar auknar tekjur í ríkissjóð, ekki einsskiptis blóðtöku. Þess
    vegna hef ég áhyggjur af þeirri hugsun sem birtist í bandorminum sem
    liggur hér fyrir. Ég er ekki að halda því fram að allar þær ráðstafanir
    sem þar er að finna séu nýir skattar en ríkisstjórnin setur sjálf fram
    töflu undir heitinu Tekjuráðstafanir 2027 og samanlögð áhrif þeirra á
    ríkissjóð eru tæplega 30 milljarðar. Það munar mest um verðlagsuppfærslu
    gjalda og viðbótarhækkun kílómetragjalds, hækkun bankaskatts, hækkun
    skatta á baðlón, breytingu á framleiðsluviðmiði tekjuskatts og lækkun
    endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis. Ég mun fara yfir
    nokkra þessara þátta hér í ræðu minni og reyna að gera það á mannamáli
    þannig að fólk skilji um hvað ræðir því að oft er svona umræða þung,
    flókin og djúp. Almenningur og fólk nær vonandi innihaldinu til að geta
    myndað sér upplýsta skoðun og viðhorf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En spurningin er ekki bara sú hvað ríkissjóður fær. Við eigum líka
    að spyrja: Hvaða áhrif hefur þetta hinum megin við borðið, þaðan sem
    ríkissjóður er að seilast ofan í vasa annarra? Skattar eru ekki bara tölur
    í ríkisreikningi. Þeir hafa áhrif á hegðun fólks og fyrirtækja. Öll gjöld
    gera það. Við erum t.d. með sektir við hraðakstri til að minnka hann.
    Gjöld og skattar fæla menn frá. Skattar hafa áhrif á það hvort fólk vinnur
    meira, hvort fyrirtæki fjárfesti eða hvort þau framkvæmi og hvort
    framkvæmd borgi sig, hvort fyrirtæki ræður nýjan starfsmann eða hvort
    fjárfesting sem átti að vera á Íslandi fer jafnvel annað, til
    samkeppnisaðila, því að þjóðin verður að vera samkeppnishæf. Við erum í
    samkeppni við allan heiminn. Þetta er í rauninni elsta lexía hagfræðinnar
    sem ég held að flestir hagfræðingar og almenningur skilji. Þetta talaði
    einmitt Adam Smith um í bókinni <ns:skáletrað>Auðlegð
    þjóðanna</ns:skáletrað>. Þar sagði hann, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Háir skattar geta í ákveðnum tilvikum skilað ríkissjóði minni
    tekjum en hóflegir skattar.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er Smith að benda á það grundvallaratriði sem gildir enn í
    dag: Skattstofninn er ekki dauður hlutur. Hann bregst við sköttum. Við
    gerum það öll. Ef við leggjum á okkur mikla vinnu og við vitum að
    skattarnir af henni eru mjög miklir þá erum við ólíklegri til að vilja
    halda því áfram. En þetta gleymist stundum í umræðunni um ríkisfjármál.
    Við sjáum skattstofn upp á hundruð milljarða og hugsum að ef við hækkum
    skattprósentuna um ákveðið hlutfall þá fáum við einfaldlega ákveðna
    fjárhæð til umráða. En ef þetta er gert þá er ekki hægt að gera ráð fyrir
    því að fólk hegði sér nákvæmlega eins og áður en þetta var gert. Skattar
    hafa áhrif á hegðun fólks og fyrirtækja. Fyrirtæki fjárfesta ekki jafn
    mikið, neysla verður ekki eins mikil og áhættusöm fjárfesting er ekki jafn
    álitleg eftir skattahækkun og fyrir. Við þurfum stundum að taka áhættu í
    fjárfestingum. Það eru áhættufjárfestingar sem skapa síðan verðmæti sem
    verða síðan meiri til skiptanna fyrir samfélagið allt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Laura Vartia, hagfræðingur í OECD, rannsakaði sérstaklega áhrif
    skattlagningar á fjárfestingu og framleiðni. Niðurstaða hennar er m. a.
    þessi, með leyfi forseta: Fjárfesting bregst neikvætt við hækkun
    fyrirtækjaskatta.</ns:mgr>

    <!---->

    <ns:mgr>Ég hefði haldið að ríkisstjórnin áttaði sig á þessu, að menn
    skattleggja sig sjaldan til velsældar. Þetta skiptir gríðarlegu máli vegna
    þess að fjárfesting dagsins í dag er framleiðni morgundagsins. Og velmegun
    í landinu eykst ekki nema framleiðni aukist, nema við tökum hana að láni,
    og það er ekki góð stefna. Með því að leyfa peningunum að vera hjá þeim
    sem best kunna með þá að fara eykst framleiðni og raunlaun geta hækkað og
    þannig verður hagvöxtur til. Þannig stækkar skattstofn ríkisins. Þannig
    stækkar skattsporið og kakan. Við hér á þingi þurfum að hugsa meira um
    þetta. Við getum fengið meiri tímabundnar tekjur með því að skattleggja
    hlutina, skera smærri sneið, en til lengri tíma litið skiptir miklu máli
    hversu stór kakan er sem er til skiptanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Bankaskatturinn í þessu frumvarpi er ágætt dæmi
    um þetta, ekki vegna þess að ég sé að gæta hagsmuna bankanna sérstaklega,
    þeir eru alveg færir um það sjálfir, heldur vegna þess hvernig umræðan um
    bankaskattinn afhjúpar þá hugsunarvillu að hægt sé að ákveða með lögum
    hver beri raunverulega skattbyrði. Í bandorminum sést að það á að hækka
    skatta á fjármálafyrirtæki úr 0,145% í 0,254% og tekjuáhrifin eru metin
    sem 6 milljarðar króna. Þetta er 75% hækkun skatthlutfallsins. En þá
    veltum við fyrir okkur: Hvern er verið að skattleggja? Bankaskattur
    hljómar eins og eitthvert stórt gímald sem framleiðir peninga, er með
    peningatré í garðinum hjá sér og skilar milljörðum í hagnað. Við verðum að
    átta okkur á því að þegar við erum að tala um stórar tölur þá eru tölurnar
    stórar. Við erum ekki að tala um einhverja vegasjoppu heldur eru þetta
    íslensku bankarnir. Bankarnir hérlendis eru að stórum hluta í eigu
    lífeyrissjóða og ríkisins og ótal minni fjárfesta. Þegar kostnaður bankans
    hækkar getur það komið fram í minni hagnaði eigenda en það getur líka
    komið fram í kjörum viðskiptavina. Það er ákveðin krafa innan bankans,
    ávöxtunarkrafa svokölluð, þannig að hér þurfa bankarnir að horfa inn á við
    og ákveða hvar þeir ætla að láta þetta högg lenda. Það er ekki ég sem er
    að segja þetta, þetta stendur í bandorminum. Það er dæmi sem menn taka, að
    ef kostnaðinum er velt út beint á viðskiptavinina og þar erum við að tala
    um að útlánsvextir hækki um 0,06 prósentustig og innlánsvextir lækki um
    0,09 prósentustig. Það kostar því meira að taka lán og þú færð minna fyrir
    það sem þú hefur inni í bankanum. Það er mikilvægt að halda þessu til
    haga. En það er sem sagt ekki hægt að skattleggja kennitölu. Þetta endar
    alltaf einhvers staðar á einstaklingum. Eigendur geta fengið minni arð,
    starfsmenn minna svigrúm til launahækkana og viðskiptavinir verri kjör.
    Hvernig byrðin skiptist fer eftir markaðsaðstæðum hverju sinni en
    skatturinn gufar ekki upp. Þegar skattur leggst á fjármálakerfið skiptir
    það sérstaklega miklu máli vegna þess að fjármagnskostnaður, þ.e.
    kostnaður við það að fá fjármagn lánað, teygir sig um allt hagkerfið. Það
    skiptir máli fyrir fjölskylduna sem er að kaupa hús, fyrirtæki sem kaupir
    tæki og frumkvöðul sem ætlar að reyna að fjármagna hugmynd og koma henni
    af stað. Þess vegna finnst mér allt of einfalt að líta á þessa 6 milljarða
    þannig að þeir komi bara inn í ríkissjóð. Við þurfum að skoða hvaða áhrif
    það hefur að taka þessa 6 milljarða út úr hinu virka
    raunhagkerfi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Sama hugsun kemur fram í húsnæðismálum. Við
    höfum árum saman rætt um húsnæðisskort, þ.e. skort á húsnæði sem
    almenningur hefur ráð á og vill búa í, ekki einhverjar lúxusþakíbúðir á
    hundruð milljóna. Við vitum að eina forsendan til að ná tökum á
    húsnæðismarkaðnum er einfaldlega að byggja meira. Framboð þarf að aukast.
    Samt leggur ríkisstjórnin til að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu
    við íbúðarhúsnæði verði lækkuð úr 35% í 20% og reikna sig til að þetta
    skili 3,6 milljörðum í ríkissjóð. En hvað gerist hinum megin? Það stendur
    reyndar í frumvarpinu, sem er ákveðinn heiðarleiki, það er jákvætt að það
    standi þar, að framkvæmdir við íbúðarhúsnæði verði kostnaðarsamari og að
    þetta geti að jafnaði verið 1% hækkun. Þetta er lýsandi. Við viljum að það
    verði meira byggt en hækkum um leið kostnaðinn við að byggja. Auðvitað
    stoppar 1% kostnaðarauki ekki alla húsbyggingu á Íslandi en á markaði sem
    er viðkvæmur og stendur og fellur með arðsemisútreikningum, þá skiptir
    hvert prósent máli. Verkefni sem er hagkvæmt verður óhagkvæmt og verður
    ekki framkvæmt. Öðru er frestað og kaupverð þarf að hækka til að verkefni
    gangi upp. Það er þetta sem ég er að tala um. Við verðum líka að horfa
    hinum megin við borðið, ekki bara hvað ríkissjóður fær. Peningarnir verða
    ekki til við lagabreytingar. Þeir koma einhvers staðar frá. Þetta á ekki
    bara við um fyrirtæki. Þetta á líka við um venjulegt vinnandi
    fólk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt það áhugaverðasta sem er að finna í þessum bandormi er
    breyting sem flestir launamenn munu sennilega aldrei vita af að hafi verið
    gerð. Hún heitir breyting á framleiðniviðmiði í tekjuskatti. Orðalag sem
    fáir skilja. Ég þurfti að leggjast í sérstaka rannsókn til að átta mig á
    þessu. Hugtakið hljómar tæknilega og sakleysislega en afleiðingin er
    einföld. Með því að setja framleiðniviðmið í núll árið 2027 hækka
    skattleysismörkin minna en ella og ríkissjóður fær 3,1 milljarð í sinn
    hlut. Hér er skattheimta sem leggst á alla launamenn í landinu, alla, 100%
    launamanna. Það átti ekki að skattleggja vinnandi fólk og venjulegt fólk
    og það átti ekki að plata, heyrði ég einhvers staðar. Enginn fær sérstakan
    reikning í heimabankann vegna þessa skatts. Enginn sér nýjan skatt með
    nýju nafni. Mörkin færast einfaldlega minna en þau hefðu annars gert og
    ríkissjóður fær meira.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er komið að þeirri spurningu sem mér finnst skipta miklu máli:
    Hversu stórt á ríkið að verða miðað við hagkerfið sem stendur undir því?
    Það er nefnilega ekki hægt að byggja sterkan ríkissjóð ofan á veikt
    atvinnulíf. Til lengri tíma er það geta okkar til að standa undir
    heilbrigðiskerfi, skóla, löggæslu og velferðarkerfi sem veltur á því
    hversu mikil verðmæti verða til í landinu. Þessu megum við ekki gleyma. Ef
    íslenskt fyrirtæki fjárfestir og tvöfaldar framleiðni sína verður meira
    til skiptanna fyrir alla. Það er ekki bara að fyrirtækið hagnist heldur
    hagnast allt samfélagið. Fyrirtækið getur greitt hærri laun, starfsmenn
    greiða meiri tekjuskatt og það er hægt að ráða fleiri starfsmenn þannig að
    heildarskattspor landsins stækkar. Við verðum að átta okkur á þessu. Ef
    við stækkum kökuna þá stækkar heildarskattspor ríkisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er merkilegt hvað við stjórnmálamenn erum oft uppteknir af því
    að skipta kökunni en síður uppteknir af því hvernig eigi að gera hana og
    hvernig eigi að gera hana stærri. Við viljum öll vera flott og stælt og í
    góðu formi. Það eru færri sem nenna að leggja það á sig. Þetta minnir
    svolítið á söguna um litlu gulu hænuna. Hún var tilbúin að leggja á sig,
    aðrir ekki. En síðan þegar átti að njóta þess sem litla gula hænan hafði
    búið til, brauðsins, þá voru allir til í að stökkva til og fá sinn
    skerf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Gleymum því ekki að skattlagning hefur áhrif. — Ég sé að tíminn er
    að verða búinn. Mig langar bara í lokin að segja að það sem við sjáum ekki
    í þessum bandormi er að fjárfesting sem ekki er ráðist í <ns:bjalla/>
    birtist ekki þar. Fyrirtæki sem ekki var stofnað birtist ekki þar og
    starfið sem aldrei var til <ns:bjalla/> birtist heldur ekki þar. —
    Afsakið, frú forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>