<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:31:53" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:33:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:31:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Ég er
    eiginlega komin hingað upp af því að mig langaði til að spyrja hv.
    þingmann hvort hann gæti aðeins farið betur yfir þetta varðandi
    framleiðniviðmiðið af því mér þykir svo áhugavert að ríkisstjórnin skuli —
    í fyrsta lagi er eitt að hún sé að svíkja öll kosningaloforð um að ætla
    ekki að hækka skatta en að gera það með þessum hætti þar sem þeir sem
    minnst hafa milli handanna lenda mjög illa í því og þrátt fyrir að
    ríkisstjórnin segi að þau ætli að reyna að vernda þann hóp. Hv. þingmaður
    talaði um að skattar hefðu áhrif á hegðun fólks, sem er vissulega rétt, en
    ríkisstjórnin hefur barist hart gegn því, eða ákveðnir fulltrúar, að birta
    gögn um það hvernig skattar eru að innheimtast, til að mynda af
    vörugjöldum. Hv. þm. Bergþór Ólason spurði beint út í þennan lið og ég hef
    spurt út í fleiri liði og við fáum ekki þær upplýsingar en engu að síður
    eigum við að vera að ræða hér hversu háa skatta við eigum að bæta við á
    almenning. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann, af því að nú erum
    við að ræða um bandorminn: Væri ekki eðlilegt að við vissum aðeins hvernig
    fyrri bandormi líður og hvort aðgerðir okkar þar séu að skila
    sér?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>