<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:33:31" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:35:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:33:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Nönnu Margréti
    Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisandsvar. Við byrjum hérna á
    framleiðniviðmiðinu sem hefur verið þannig að við erum með skattleysismörk
    sem fylgja verðlagi og þar að auki hefur verið prósent ofan á það í
    svokallað framleiðniviðmið. Þetta er tekið af núna þannig að afsláttur til
    skatts er að minnka um prósent með þessari aðgerð. Það á að skila 3,1
    milljarði. Mögulega eru þetta ekki háar upphæðir fyrir einhverja, sem fólk
    verður af þarna og ríkið tekur í aukinn skatt. En þetta skiptir máli fyrir
    þá þar sem hver þúsundkall um hver mánaðamót skiptir máli, skiptir máli
    hvort menn hafi í sig og á. Þess vegna er mjög sérstakt að þetta kosti 3,1
    milljarð og ríkið segist ætla að skila hallalausum fjárlögum upp á tæpa 5
    milljarða. Það hefði verið hægt að sleppa þessu og samt taka upp tússinn
    og tússa þennan flotta hring þarna sem var gerður, það hefði verið hægt,
    og standa við hallalaus fjárlög án þess að leggja þessa auknu skattbyrði á
    fólk sem hefur minnst fyrir sjálft sig. Það eru svona duldar
    skattahækkanir sem eru í raun óþolandi. — Ég sé að tíminn er að renna út
    þannig að ég get mögulega svarað seinni spurningunni í næsta andsvari eða
    fengið bara nýtt andsvar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>