<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:35:46" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:36:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:35:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og mig langaði bara
    rétt hérna í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann, þó að hann hafi ekki
    komið sérstaklega inn á hvern lið, um það að nú vitum við að gjöld eru að
    hækka heilt yfir um 5,2% en svo eru sum gjöld að hækka miklu meira. Þar
    inni er einn skattur sem vakti sérstaka athygli mína og það er
    ETS-skatturinn, loftslagsskatturinn umræddi, sem er að hækka um 9%. Ég
    veit ekki hvort þetta er það sama en ég taldi að ríkisstjórnin væri að
    segja okkur það að hún væri að reyna að berjast fyrir því að afnema hann
    og fá undanþágur hvað þetta varðar. En nei, hún er að lögfesta hann að
    einhverjum hluta og festa inni 9%, enn meiri hækkun á þessum
    loftslagsskatti sem hefur áhrif á allt flug, öll matar- og vöruinnkaup til
    landsins. Veit hv. þingmaður eitthvað um þetta? Það er smá ósanngjarnt af
    mér að spyrja hann þegar hann er ekki í stjórnarmeirihluta, en mér brá
    svolítið að sjá þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>