<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:36:59" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:38:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:36:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir fínt andsvar um ETS-skattinn og þessa hækkun hans. Ég hef ekki kafað
    þannig ofan í málið að ég geti svarað fyrir þetta en þetta er svona einn
    af þeim sköttum sem hafa komið Evrópu svolítið á kaldan klaka. Það eru
    ekki önnur meginlönd eða aðrar þjóðir að leggja þetta á og þetta skerðir
    samkeppnishæfni álfunnar. Svo heyrir maður alls konar sögur í kringum
    þetta, að menn séu að umskipa einhvers staðar í Marokkó og Gíbraltar,
    skipin sem koma frá Sjanghaí, til að reikna ekki þessa skatta alla
    leiðina. Þetta er kerfi sem þyrfti einhvern veginn að hugsa alveg upp á
    nýtt og við sem eyþjóð sem neyðumst til að nota flugsamgöngur þyrftum
    virkilega að taka þessi mál til alvarlegrar skoðunar og vega og meta
    hagsmunina af því <ns:bjalla/> sem fer í þessa skatta og í það kannski að
    bæta kjör almennings með öðrum hætti.</ns:mgr>

    <!--Sjanghaí skv. málinu/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>