<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:38:28" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:40:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:38:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir
    ræðuna. Það kom nú ekki alveg skýrt fram hvort hv. þingmaður vilji ná
    saman fjárlagahallanum og sé þá sammála markmiði ríkisstjórnarinnar hvað
    það varðar, að skila hallalausum fjárlögum. Þá væri áhugavert að vita
    hvaða leiðir hann vill fara. Hann sagðist vilja vaxa út úr vandanum en það
    er auðvitað vandi ef menn ætla jafnvel að auka hallann vegna þess að ef
    menn afla ekki tekna þá bara stækkar gatið. Það væri því fróðlegt að fá
    upplýsingar um hvaða leiðir hv. þingmaður sér fyrir sér. Það hafa komið
    fram frá Sjálfstæðisflokknum tillögur t.d. um að selja Leifsstöð, selja
    Landsnet, sem er einokunarfyrirtæki sem dreifir orkunni um landið, selja
    Rarik og fleiri þættir. Það væri áhugavert að sjá hvaða leiðir hv.
    þingmaður sér. Er hann jafnvel tilbúinn að fara í það að efla innlenda
    fiskvinnslu þannig að við séum að auka verðmætasköpun innan lands? Það
    væri fróðlegt að fá að heyra uppbyggjandi umræðu og tillögur, bæði hvað
    varðar tekjuauka og sparnað, ef menn vilja fara aðrar leiðir heldur en þær
    tekjuöflunarleiðir sem ríkisstjórnin hefur boðað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>