<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:40:15" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:42:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:40:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir
    ágætisandsvar. Fyrir það fyrsta er ég ekki til í að gera það sama og
    forsætisráðherra hefur nefnt, að loka fjárlagagatinu sama hvað það kostar.
    Ég væri ekki til í að slátra mjólkurkúnni af því að fólkið er svangt. Ég
    vildi frekar mjólka og hjálpa henni mögulega að eignast kálfa, fjölga
    kálfunum, geta fengið meiri mjólk í staðinn fyrir einskiptisaðgerð og
    slátra henni og hafa nóg kannski í viku. Það er grunnpunkturinn. Sama hvað
    það kostar. Þetta er ákveðin mantra og þetta er pólitískt hugtak þar sem
    menn ætla að reyna að ná að loka fjárlagagatinu. Ég er hlynntur því
    almennt að menn reki, hvort sem það er heimili, fyrirtæki eða ríkissjóður,
    hallalausan rekstur, algerlega hlynntur því, en ekki sama hvað það kostar.
    Ég er ekki tilbúinn að fórna öllu til þess, alls ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með fiskvinnslu þá vil ég að við fullvinnum sem mest hérlendis, að
    virðiskeðjan sé sem mest á Íslandi, að við fáum sem mest fyrir hvert
    kílógramm af fiski og það hjálpar víða til við að halda byggð í landinu.
    En ekkert af þessu er sama hvað það kostar. Það er ofboðslega óábyrgt að
    segja það. Það er því miður einhver mantra sem hefur gengið þvert í gegnum
    alla ríkisstjórnina.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>